Sósíaldemókratar fá níu ráðherraembætti, Sósíalíski þjóðarflokkurinn fimm embætti, Moderaterna fjögur og Radikale þrjú. Pia Olsen Dyhr, formaður Sósíalíska þjóðarflokksins, verður efnahags- og innanríkisráðherra og Martin Lidegaard, formaður Radikale, verður iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á ráðherraliði Sósíaldemókrata og Moderaterna en fyrri flokkurinn skiptir fjórum ráðherrum út og seinni þremur.
Peter Hummelgaard verður fjármálaráðherra, Jeppe Bruus varnarmálaráðherra og Nicolai Wammen varnarmálaráðherra. Allir eru Sósíaldemókratar.