Kona sem hlaut dóm fyrr á þessu ári fyrir að hafa tekið sér bólfestu í tunnu, sem notuð er til útsýnis, í mastri skips Hvals hf., í 33 klukkustundir, kallar innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal slys. Hún segir þetta hreinlega vera afleiðingu af þeirri áhættu sem hafi verið tekin með því að flytja minka til landsins í upphafi og að standa fyrir slíkum rekstri.
Kona sem truflaði veiðar Hvals kallar innbrotið í minkabúið slys