Óprúttnir aðilar urðu sér úti um persónuupplýsingar 8,8 milljón Dana með því að misnota löglegan aðgang að dönsku þjóðskránni, CPR. Í skrám CPR má finna upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölur fólks. Dönsk stjórnvöld greindu frá atvikinu í gærkvöld.
Alls búa rúmlega sex milljónir í Danmörku en CPR-kerfinu er ekki einungis að finna upplýsingar um fólk sem býr í landinu heldur einnig um þá sem eru brottfluttir eða látnir. Spellvirkjarnir hafa því farið mikinn og gengið skrefinu lengra í leitinni.
Að sögn yfirvalda er ekki um innbrot í tölvukerfið að ræða heldur misnotkun á löglegum aðgangi dansks fyrirtækis að skránni. Aðgangurinn var svo notaður til þess að komast yfir upplýsingar um þessar 8,8 milljónir manna.
Komið var auga á óreglulega virkni í kerfinu í seinustu viku og var aðgangi fyrirtækisins sem um ræðir lokað. Ekki liggur fyrir hverjir nákvæmlega stóðu að baki verknaðinum eða hvað varð um þær upplýsingar sem komist var yfir.
Lögregla er með málið til rannsóknar og hefur danska persónuverndareftirlitið sömuleiðis hafið sína eigin rannsókn.
Dönsk yfirvöld biðja almenning um að hafa augun opin fyrir mögulegum svikapóstum og svikatilraunum. Upplýsingar á borð við nafn, heimilisfang og kennitölu geta meðal annars verið notaðar til að gera svindlsamskipti trúverðugri, fólk sé þá líklegra til að afhenda frekari upplýsingar.