Björgunarskip voru kölluð út tvisvar í gærkvöld og í nótt vegna fiskibáta sem lentu í vanda.
Fyrra útkallið barst um klukkan átta í gærkvöld. Þá bilaði vélin í bát á miðjum Breiðafirði, suður af Látrabjargi. Skipverjarnir tveir óskuðu eftir aðstoð við að komast til Hafnarfjarðar þangað sem leið þeirra lá.
Björgunarskipið Björg frá Rifi fór af stað til hjálpar og tók bátinn í tog suður fyrir Snæfellsnes. Þar kom björgunarskipið Kristrún á Bjargi frá Akranesi á móti Björgu og aflvana bátnum. Kristrún tók við drættinum og sigldi með bátinn áleiðis til Hafnarfjarðar. Áætlað er að þangað verði komið um klukkan níu í dag. Þá verður aðgerðin búin að standa yfir í um hálfan sólarhring.
Þetta var ekki eina verkefni björgunarskipa því Húnabjörg á Skagaströnd var kölluð út vegna fiskibáts á Húnaflóa um klukkan sex í morgun. Báturinn hafði þá dottið út úr sjálfvirka tilkynningakerfinu. Þegar Landhelgisgæslan hafði samband við skipstjórann kom í ljós að vélin var byrjuð að ofhitna. Hann ákvað því að drepa á vélinni og tókst það með því að loka fyrir eldsneytiskerfið.
Þá var ekki lengur hætta á að kviknaði í bátnum en hann komst hvorki lönd né strönd. Húnabjörgin fór því eftir honum og tók í tog og er komin með hann í höfn á Skagaströnd.