Sjúkraflutningalið frá Selfossi fór einnig á vettvang ásamt lögreglu en gjáin er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni.
„Ljóst var frá upphafi að nokkur vinna yrði að koma þeim slasaða þangað sem sjúkrabíll komst og fóru hópar strax í að koma upp línum og tryggingum til að undirbúa að koma þeim slasaða á sjúkrabörum upp úr gjánni,“ segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Þurfti að flytja hann á annað hundrað metra yfir úfið hraun og kjarri vaxið land til að koma honum í sjúkrabíl. Hópur björgunarmanna tók þátt í því að lyfta sjúkrabörunum upp úr gjánni og síðan var hjól sett undir þær síðasta spölinn, að sögn Landsbjargar. Um klukkan 21:30 hafi hinn slasaði verið kominn í sjúkrabíl.