Á hverju ári fyllast fjölmiðlar miklum áhuga á því hvaða landsmenn hafi það verulega gott og miða þá við fjárhagslega velsæld. Birtir eru alls kyns listar, eins og svokallaður hátekjulisti þar sem finna má nöfn tekjuhæstu Íslendinganna. Svo er fjöldi annarra lista sem þykja ekki eins spennandi því þar er nokkuð um einstaklinga sem eru ekkert óskaplega ríkir og svo aðrir sem eiga ansi lítið. Sérstök blöð koma út sem eru aðallega helguð einstaklingunum sem eiga dágóðan slatta af peningum og netmiðlar birta myndir af þeim með alls kyns fyrirsögnum sem tengjast gróða þeirra.
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Ríku Íslendingarnir