Íranir í útlegð mótmæltu klerkastjórninni áður en fyrsti leikur landsliðsins á heimsmeistaramóti karla í fótbolta hófst í Los Angeles í Bandaríkjunum. Andstæðingurinn var Nýja Sjáland.
Mótmælendur báru skilti, veifuðu fánum og sögðu liðið ekki vera fulltrúa írönsku þjóðarinnar. Mótmælin voru þó friðsamleg að sögn erlendra fréttaveitna. Nokkur óvissa var um þátttöku Írana í mótinu vegna stríðsins við gestgjafana Bandaríkjamenn. Ellefu úr starfshópi liðsins var til að mynda meinað um vegabréfsáritun. Leiknum lyktaði með jafntefli, 2 - 2.