Kjörsókn á stærsta kjörstað landsins orðin jafnmikil og í sveitarstjórnarkosningum

Kjörsókn á stærsta kjörstað landsins orðin jafnmikil og í sveitarstjórnarkosningum

Kjörsókn á stærsta kjörstað landsins orðin jafnmikil og í sveitarstjórnarkosningum

Krummi sem var á ferðinni í Hjaltastaðaþinghá á Fljótsdalshéraði var beðinn um að spá fyrir um niðurstöðu kosninganna. Krumminn var neikvæður en engum sögum fer af spádómsgáfu hrafnisins eða hvort nokkru sinni hafi reynt á hana áður.

Það var Þorvaldur Björgvin Ragnarsson smiður á Egilsstöðum sem rakst á hrafninn og krafði hann svara.

Kjörsókn í stærstu á stærsta kjörstað landsins, í Smáranum í Kópavogi þar sem allir Kópavogsbúar greiða sín atkvæði, var orðin jafnmikil klukkan 18 og hún var við lokun kjörstaðarins í sveitarstjórnarkosningum í vor.

Þetta segir Halla Björk Evans, fulltrúi í hverfiskjörstjórn Smárans í Kópavogi.

„Núna klukkan 18 vorum við að fá tölur og það eru 47% búin að kjósa og við vitum að það er um 20% utan kjörfundar. Þannig núna klukkan 18 erum við komin í sirka 67%, sem er sama og var í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi. Þetta verður allavega spennandi og við eigum alveg von á því að þetta fari svolítið vel upp þegar líður á kvöldið,“ segir Halla.

Hún segir kjörfund hafa gengið vel. Hún segir kjósendur afslappaðri en í sveitarstjórnar- og alþingiskosningum og hún segist sakna þess að konur mæti í þjóðbúningum á kjörstað.

Rassskelltu kjósendur

Halla segir engan áróður hafa verið á kjörstað, en það hafi fimm ungar stúlkur mætt skrautlega klæddar og með bolluvendi fyrir utan kjörstað fyrr í dag.

„Þær stóðu hérna fyrir utan og sögðu þetta eru okkar kosningar og okkar framtíð og við viljum fá að kjósa, og óskuðu eftir að fá að rassskella með bolluvöndunum alla aðra sem fengu að kjósa en ekki þær,“ segir Halla.

Magnús Hlynur Hreiðarson skrifar frá Selfossi:

Eyrún Olsen og Hjörtur Þórarinsson, sem búa á Selfossi mættu prúðbúin í Vallaskóla í dag þegar þau kusu í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hún í eldri gerð af faldbúningi og hann í herrabúningi. Eyrún saumaði búningana hjá Hildi Rosenkjær í Annríki og Ásmundur maðurinn hennar smíðaði nær allt skartið.

Eyrún segist hafa alist upp við að heiðra kosningaréttinn og klæða sig upp á kjördag. Þá hefð hafi hún reynt að halda í.

„Þessa búninga saumaði ég, fyrst faldbúninginn sem ég lauk 2016 og síðan herrabúninginn 2018 með sínum 52 handsaumuðu happagötum,“

Það tekur aðeins um 10-11 vikur að sauma herrabúning en 3 ár að sauma faldbúning, segir Eyrún.

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, greiddi sitt atkvæði í Álftanesskóla í dag ásamt Birni Skúlasyni, eiginmanni sínum, og Auði Ínu, dóttur þeirra.

Nú fer hver að verða síðastur að ákveða sig hvort hann segi já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Kjörstaðir loka eftir fimm klukkustundir.

Framlag Íslands í Eurovision 1992 var einmitt lagið Nei eða já.

Gunnhildur Gylfadóttir, bóndi á Steindyrum, mætti prúðbúin í íslenskum þjóðbúning og á Massey Ferguson 165 dráttarvél á kjörstað á Dalvík.

Sælkerabúðin Vellir í Svarfaðadal deildi þessari mynd af henni á Facebook.

Tökumaður okkar á Vestfjörðum leit við á kjörstað á Ísafirði. Þar var stöðugur straumur af fólki. Ísafjörður er í Norðvesturkjördæmi, en þar var kjörsókn 40,9% klukkan 15.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, greiddi atkvæði sitt í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ síðdegis.

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi eru væntanlegar strax á ellefta tímanum en annarsstaðar frá því upp úr miðnætti. Síðustu tölur gætu borist úr Norðvestur- og Norðausturkjördæmum klukkan sjö í fyrramálið. Nánar um talningu í þessari frétt:

Við ræddum við Ólöfu Magnúsdóttur, verkefnastjóri skrifstofu borgarstjórnar, um talningu í Reykjavík og einnig er hægt er að horfa á viðtalið hér:

Ljósmyndari RÚV rakst á þessa hressu krakka sem höfðu sett upp tombólu fyrir utan kjörstað í Vesturbæjarskóla í Reykjavík.

Helga Eymundsdóttir formaður kjörstjórnar á Akureyri segir ekki mikinn mun á framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar og alþingis- eða sveitarstjórnarkosningar.

Hún segist vera með þaulvant fólk í vinnu og að röð hafi verið við kjörstað við opnun. Þá hafi verið stanslaust rennerí af fólki síðan. Kjörsókn sé betri og allt stefni í metkjörsókn.

Siguróli Magni Sigurðsson, fréttamaður á Akureyri, tók nokkra kjósendur tali fyrir utan kjörstað í dag. Það voru þau Rafn Sveinsson, Sindri Þór Guðmundsson, Baldur Marinósson , Pétur Valgeir Pálmason, Kolbrún Ósk Eðvaldsdóttir, Jóhannes Sigvaldason, Apríl Ýr Kro, Stefán Gíslason og Sonja Kro.

Hann ræddi einnig við tvo erlenda ferðamenn sem hér eru staddir. Þar sem viðtalið er ekki textað í spilaranum verður það lauslega þýtt hér:

Bandaríkjamaðurinn Martin Kelly sagði það mjög jákvætt að þjóðin hefði atkvæðarétt í þessu máli. Kosningaréttur væri eitthvað sem Bandaríkjamenn væru mjög stoltir af.

Hann sagðist telja að fólk yrði að kjósa samkvæmt eigin sannfæringu um hvað væri best fyrir landið og hvað geri fólk stolt af sínu landi. Efnahagslega sagði hann að það hefði eflaust einhverja kosti að ganga í Evrópusambandið, en að fólk yrði að kjósa það sem það vildi fyrir sjálft sig, fjölskyldu sína og afkomu sína.

Einnig var rætt við Michael Collins frá Bretlandi. Sá kvaðst vissulega vita hvað væri um að vera á Íslandi í dag, atkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Spurður hvort hann hefði einhver ráð handa Íslendingum byrjaði hann að segja „ekki gera það“ en dró það síðan til baka og vildi byrja upp á nýtt.

„Það sem ég ætlaði að segja er að þið viljið ganga í [ESB], því við fórum [úr ESB] og við sjáum eftir því,“ sagði Michael.

Hann sagðist ekki hafa séð hag Breta batna eftir að þeir gengu úr Evrópusambandinu. Hann segir efnahaginn verri en hann var og ferðalög séu flóknari. Hann sjái enga kosti.

„Ég held að í þessum heimi þurfirðu bandamenn. Þú þarft að halda vinum þínum nærri og ég held það sé það sem ESB býður. Við höfum tapað því, við sitjum svolítið fyrir utan núna. Þar sem þið eruð, ég held að þið verðið að vera nær öðrum. Ég skil alveg að rétturinn til fiskveiða er ykkur mjög mikilvægur og þið þurfið að berjast fyrir honum. En ég held að við lifum í heimi þar sem við þurfum að vera nær bandamönnum okkar.“

Formenn kjörstjórna segja daginn fara vel af stað.

Í Reykjavík er meiri kjörsókn en fyrir Alþingiskosningarnar 2024. Í Reykjavíkurkjördæmi norður höfðu 13,7% kosið klukkan tólf á hádegi en rúmlega 10% fyrir síðustu Alþingiskosningar.

Í Reykjavík Suður voru rúmlega 14% búnir að greiða atkvæði í hádeginu samanborið við rúmlega 11% fyrir Alþingiskosningarnar.

Á Akureyri voru tæplega 1.300 búnir að kjósa klukkan ellefu, það er 8,7% þáttaka, einu 1,7 prósentustiga meiri þátttaka en fyrir Alþingiskosningar.

Kjörsókn í Suðvesturkjördæmi var 7,5% klukkan ellefu. Það er talsvert meiri kjörsókn en í síðustu Alþingiskosningum þegar rúmlega 6% voru búnir að kjósa á saman tíma. Í Suðvesturkjördæmi hafa nú rúmlega 6.000 mætt á kjörstað.

Rúmlega 4.000 voru búnir að greiða atkvæði í Suðurkjördæmi klukkan ellefu, það er 9,6% kjörsókn.

Í Norðvesturkjördæmi höfðu rúmlega 15% greitt atkvæði klukkan hálft 12 samanborið við tæplega 11% í síðustu Alþingiskosningum.

Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur segir flokkahollustu það sem skýri mest hvað fólk komi til með að velja í þjóðaratkvæðagreiðslunni.

„Þetta virðist vera hnífjafnt. Og eiginlega út frá gögnunum sem við höfum er algjörlega ómögulegt að spá fyrir um það hvort já-ið verður ofan á eða nei-ið verður ofan á,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, í Vikulokunum á Rás 1.

Hann segir ólíklegt að ríkisstjórnin falli verði niðurstaðan nei. Nánar um viðtalið við Ólaf í fréttinni hér að neðan.

Halldór Benjamín Þorbergsson, einn forsprakka Áfram Íslands, sem beitir sér gegn aðildarviðræðum Íslands við ESB, greiddi atkvæði í Hagaskóla í Reykjavík á tólfta tímanum.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra greiddi atkvæði sitt í Álftamýraskóla í Reykjavík skömmu fyrir hádegi. Þar var fjöldi fulltrúa innlendra og erlendra fjölmiðla mættur til að fylgjast með og ræða við hana.

Erlendir fjölmiðlar beina sjónum sínum að þjóðaratkvæðagreiðslu Íslands um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Hér að neðan eru nokkur dæmi um umfjallanir erlendra miðla.

Kjörsókn í Reykjavík klukkan 11 var talsvert betri en á sama tíma í alþingiskosningum 2024. Klukkan 11 höfðu rúm 8% greitt atkvæði, en í alþingiskosningunum höfðu rúm 5% greitt atkvæði klukkan 11.

Á Akureyri var kjörsókn klukkan 11 8,7%.

Kjörsókn í utankjörfundaratkvæðagreiðslu var einnig mjög góð.

Í Vikulokunum í dag er rætt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið, uppsagnir hjá Reykjavíkurborg, kjarasamninga og verðbólgu. Þátturinn er í beinni útsendingu á samtengdum Rásum 1 og 2, en líka í á RÚV.is og þar er þátturinn einnig í mynd. Þátturinn hófst klukkan ellefu og honum lýkur skömmu fyrr hádegisfréttir útvarps klukkan 12:20.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greiddi atkvæði í Lækjarskóla í Hafnarfirði á ellefta tímanum. Hún mætti á kjörstað ásamt dóttur sinni. Fjölmargir innlendir og erlendir fjölmiðlar mættu til að fylgjast með Þorgerði og ræða við hana um þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi atkvæði í Hveragerði klukkan tíu.

Já- og nei-hreyfingarnar bjóða kjósendum far á kjörstað.

Á vef Já til að sjá er gefið upp símanúmer sem fólk getur hringt í vanti það far.

Á vef Áfram Ísland býðst þeim sem ekki komast hjálparlaust á kjöstað að fylla út form og hringt verður í viðkomandi til að ákveða tíma.

Við ræddum við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á dögunum um hvað gerist eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hvort sem niðurstaðan verður já eða nei segir Þorgerður sitt fyrsta verk verða að kalla sama utanríkismálanefnd Alþingis.

Verði svarið já verður Evrópusambandinu formlega tilkynnt um niðurstöðuna, samninganefnd mynduð og loks hefjast viðræður.

Verði svarið nei verður niðurstaðan rædd á Alþingi og afstaða tekin til afturköllunar umsóknarinnar. Verði niðurstaðan nei mun sitjandi ríkisstjórn ekki taka Evrópusambandsaðild upp að nýju.

Nánar um svar Þorgerðar í þessari frétt:

Í Breiðagerðisskóla í Reykjavík var nokkur fjöldi kjósenda mættur á kjörstað við opnun klukkan níu í morgun og ágætis rennerí á tíunda tímanum.

Í Reykjavík og mörgum stærri sveitarfélögum verður kjörfundur opinn til klukkan tíu í kvöld - en upplýsingar um opnunartíma kjörstaða má nálgast á vefsíðum sveitarfélaga.

Það munar innan við prósentustigi á já- og nei-hreyfingunni í nýjustu könnun Maskínu sem gerð var í gær. Örlítið fleiri ætla að segja já.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni svara kjósendur einni spurningu með því að merkja X við já eða nei: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“

Þá má benda á vef Landskjörstjórnar þar sem fjölmörgum spurningum um atkvæðagreiðsluna er svarað.

Í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sögðust aðeins fleiri ætla að segja nei við því að hefja á ný aðildarviðræður við ESB. 51,6% sögðust ætla að segja nei en 48,4% já.

Ef lesendur eiga enn eftir að gera upp hug sinn er til dæmis hægt að horfa á umræðuþátt um þjóðaratkvæðagreiðsluna, sem tekinn var upp í beinni útsendingu á RÚV á fimmtudagskvöld. Þátturinn var rúmlega 80 mínútur og er hægt að nálgast í fréttinni hér að neðan eða í Spilara RÚV.

  • Íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri og eru með lögheimili hér á landi hafa kosningarétt. Það hafa einnig íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis, ef þeir hafa búið skemur en 16 ár erlendis. Hafi þeir búið lengur en 16 ár erlendis þarf að sækja um til Þjóðskrár að vera tekinn á kjörskrá.
  • Til að sjá hvar þú átt að kjósa er hægt að fara inn á vef Þjóðskrár og slá inn kennitölu.
  • Kjörstaðir eru víðast hvar opnaðir klukkan 9 og standa opnir til klukkan 22, en nánari upplýsingar um opnunartíma kjörstaða er að finna á vefsíðum sveitarfélaganna.
  • Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá Sýslumanninum á Höfuðborgarsvæðinu er opin frá klukkan 10 til 17 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund. Hér er hægt að finna nánari upplýsingar um opnun utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
  • Til að fá að greiða atkvæði verður að framvísa gildum persónuskilríkjum. Það getur verið vegabréf, nafnskírteini eða ökuskírteini.

Velkomin á fréttavakt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Kjörstaðir verða opnaðir innan skamms, klukkan níu.

Líkt og greint var frá í gær höfðu þegar 23% þjóðarinnar greitt atkvæði utan kjörfundar. Það er meira en áður.

Við ætlum að fylgjast með öllum helstu vendingum á kjördag hér í fréttavaktinni.

#kjörstað #kjörsókn #landsins #orðin #stærsta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-29-kjorsokn-a-staersta-kjorstad-landsins-ordin-jafnmikil-og-i-sveitarstjornarkosningum-485288

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...