Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan tíu árdegis.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði fréttastofu RÚV í gær að deilan væri hvort tveggja þung og erfið. Margar tillögur til lausnar hefðu verið lagðar fram en viðræðurnar mjakist mjög hægt áfram. Ástráður vildi aðspurður hvorki greina efnislega frá innihaldi tillagnanna né tjá sig um hvort aflýsingar flugferða Icelandair héldust í hendur við gang viðræðna.