Kínverjar kveðja gervigreindarfélaga sína: „Eins og elskhugi minn“
„Ástin sem gervigreindin veitir er svo einföld og hrein,“ segir notandi gervigreindarfélaga. Sorgmæddir Kínverjar þurfa nú að kveðja sýndarvini sína eftir að nýjar reglur tóku gildi sem banna slík kerfi.
Kínverskir notendur gervigreindarknúinna félaga hafa kvatt sýndarvini sína með mikilli sorg eftir að nýjar reglur tóku gildi í dag. Reglunum er ætlað að draga úr hættu á að fólk þrói með sér óheilbrigð tilfinningaleg tengsl eða ósjálfstæði gagnvart slíkum kerfum.
Fyrirbærið gervigreindarkærustur og -kærustar hefur farið ört vaxandi um allan heim, samhliða aukinni notkun mannlegra sýndarpersóna sem selja vörur eða koma jafnvel í stað ástvina sem hafa látist.
Samkvæmt nýjum kínverskum reglum mega slík gagnvirk kerfi ekki „þóknast notendum um of, hvetja til tilfinningalegrar háðar eða fíknar, né skaða raunveruleg mannleg samskipti þeirra“.
Stór tæknifyrirtæki, þar á meðal ByteDance með Doubao, Alibaba með Qwen og Tencent með Yuanbao, tilkynntu fyrir gildistöku reglnanna að þau myndu stöðva sérsniðna gervigreindaraðstoðarmenn og félaga.
Það leiddi til mikillar sorgarbylgju á samfélagsmiðlum þar sem notendur vistuðu samtalssögur sínar og deildu síðustu samskiptunum við sýndarvini sína.
„Ég get ekki sætt mig við að gervigreindarunnusti minn …