Allir þeir kenísku lögreglumenn sem áttu að aðstoða yfirvöld á Haítí í glímunni við illskeytt glæpagengi hafa yfirgefið landið. Stjórnvöld í Keníu buðust til að leiða alþjóðlega öryggissveit á vegum Sameinuðu þjóðanna sem öryggisráðið samþykkti fyrir tæpum þremur árum.
Sveitin var alla tíð illa tækjum búin, undirfjármögnuð og verulega undirmönnuð og öryggisráðið samþykkti á síðasta ári að gera sveitina enn þá öflugri og fjölmennari með 5.500 lögreglu- og hermönnum. Um það bil 400 manna liðsauki frá Tsjad er þegar kominn til Haítí.
Vopnaðir hópar glæpamanna hafa haldið víðfeðmum svæðum á Haítí í heljargreipum árum saman, með manndrápum, nauðgunum, gripdeildum og mannránum. Þeir ráða meðal annars stærstum hluta höfuðborgarinnar Port-au-Prince, að sögn Sameinuðu þjóðanna.
Ástandið versnaði verulega árið 2024 þegar ofbeldið fór svo úr hófi að Ariel Henry, umboðslaus forsætisráðherra, neyddist til afsagnar. Forsetaráð tók tímabundið við stjórn landsins en það var leyst upp í febrúar og völdin færð forsætisráðherranum Alix Didier Fils-Aime.