Keir Starmer tilkynnti í morgun afsögn sína sem forsætisráðherra Bretlands eftir aðeins tæp tvö ár við völd.
Starmer var sýnilega hrærður þegar hann steig út fyrir Downing Street og staðfesti að hann myndi stíga til hliðar, með nýjan leiðtoga Verkamannaflokksins í embætti fyrir september.
Forsætisráðherrann virtist grátklökkur þegar hann þakkaði eiginkonu sinni, Lady Starmer, og börnum þeirra fyrir stuðninginn.
„Þegar ég læt af stærsta starfi landsins ætla ég að verja meiri tíma í mikilvægasta starf mitt – að vera besti eiginmaður sem ég get verið fyrir frábæru eiginkonu mína Vic, sem hefur staðið eins og klettur við hlið mér í gegnum súrt og sætt, og besti faðir sem ég get verið fyrir fallegu börnin mín, sem eru stolt mitt og gleði,“ sagði Starmer með skjálfandi rödd.
Hann sagði að það hefði verið „stoltasta stund lífs síns“ að ganga inn í Downing stræti 10, en viðurkenndi jafnframt að tími hans í embætti væri liðinn.
Burnham talinn óumflýjanlegur arftaki
Starmer mun sitja áfram tímabundið á meðan leiðtogakjör Verkamannaflokksins fer fram, til að tryggja „skipuleg valdaskipti“.
Allt bendir nú til þess að Andy Burnham taki við embættinu. Burnham, sem vann afgerandi sigur í aukakosningum í Makerfield, er á leið til Westminster í dag þar sem hann verður formlega svarinn inn sem þingmaður.
Burnham er sagður njóta yfirgnæfandi stuðnings innan þingflokksins og talið er líklegt að hann taki við án formlegs leiðtogaslags.
Afsögn Starmer markar dramatísk tímamót í breskum stjórnmálum og endar valdatíð hans aðeins tæpum tveimur árum eftir stórsigur Verkamannaflokksins í þingkosningunum 2024.
Ef Burnham tekur við verður hann sjöundi forsætisráðherra Bretlands á aðeins tíu árum.