KAPP ehf. hefur gengið frá sölu á flöguísvél til Matorku til notkunar í bleikjuvinnslu fyrirtækisins í Hafnarfirði. Samningur þess efnis var undirritaður á Sjávarútvegssýningunni í Barcelona sem nú stendur yfir.
Með þessari fjárfestingu styrkir Matorka kælikeðju sína og bætir meðhöndlun hráefnis í vinnslu. KAPP og Matorka hafa átt í nánu samstarfi um árabil. KAPP hefur áður afhent og sett upp búnað hjá Matorku sem styður við framleiðsluferla félagsins. Þar má nefna OPTIM ICE krapakerfi, súrefniskerfi fyrir eldisstöðvar, og forkælibúnað. Kemur þetta fram í tilkynningu.
Nýja flöguísvélin er hönnuð til að tryggja stöðug gæði í kælingu og styðja við skilvirka vinnslu bleikju. Lausnin fellur að þeim kröfum sem gerðar eru til nútíma fiskvinnslu þar sem hitastýring og ferskleiki skipta lykilmáli.
„Samstarf okkar við Matorku hefur þróast jafnt og þétt og þessi sala er eðlilegt framhald af því,“ segir Heimir Halldórsson, viðskiptastjóri KAPP ehf. „Við leggjum áherslu á áreiðanlegar lausnir sem skila mælanlegum árangri í rekstri,” segir Heimir ennfremur.
Uppsetning búnaðarins fer fram á næstu vikum að sögn Heimis.