„Þessir fyrstu mánuðir hérna úti hafa verið áskorun,“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari kvennaliðs Kristianstad í fótbolta, í samtali við Morgunblaðið.
Nik, sem er 39 ára gamall, tók við þjálfun sænska liðsins síðasta haust eftir að hafa stýrt Íslands- og bikarmeisturum Breiðabliks í tvö tímabil en hann gerði kvennalið Breiðabliks tvívegis að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum á tíma sínum í Kópavoginum.
Áður en hann tók við Breiðabliki hafði hann stýrt Þrótti úr Reykjavík frá 2016 til ársins 2023 og kom liðinu meðal annars í úrslitaleik bikarkeppninnar árið 2021.
Kristianstad fór vel af stað á tímabilinu undir stjórn Niks og vann þrjá leiki í röð í deildinni en liðið er án sigurs í síðustu fjórum deildarleikjum sínum og er sem stendur í sjötta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með 11 stig, tíu stigum minna en topplið Hammarby.
„Þessi deild er miklu taktískari en sú íslenska og leikmennirnir hérna eru heilt yfir betri leikmenn. Þetta er klárlega skref upp á við frá Bestu deildinni en leikirnir hérna eiga það til að vera mjög lokaðir og taktískir.
Kærastan mín er ekki mikill fótboltaáhugamaður en henni fannst alltaf mjög gaman að mæta á leiki á Íslandi þar sem var mikið í gangi. Hún mætti á síðasta deildaleik okkar gegn Hammarby sem endaði 1:0 fyrir Hammarby og hún sónaði alveg út á leiknum því það var svo lítið í gangi. Skemmtanagildið í leikjunum hérna, fyrir hinn almenna knattspyrnuáhugamann, er því ekki alltaf alveg það sama og á Íslandi,“ sagði Nik léttur.
Ítarlegt viðtal við Nik Chamberlain má sjá á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.