Jón Gnarr segir heiftina hafa farið út fyrir allan þjófabálk: Við erum ekki svona fólk
Þingmaður Viðreisnar segir kosningabaráttuna hafa verið sorglega á köflum og hótanir gagnvart formanni Viðreisnar hafi verið fyrir neðan allar hellur.
Þingmaður Viðreisnar, Jón Gnarr, segir umræðuna í kringum kosningabaráttuna fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa verið sorglega á köflum. „Ég er að mestu leyti sáttur, kannski að heiftin hefur farið út fyrir allan þjófabálk, og mér sýnist það mjög sorglegt,“ segir Jón. Heimildin ræddi við Jón í gærkvöldi í Hafnarhúsinu, áður en niðurstaða kosninganna var ljós.
Spurður hvort það sé lærdómur falinn í baráttunni svarar Jón, „já, alveg fullt,“ og springur svo út hlátri.
Formaður Viðreisnar upplýsti um það fyrir helgi að henni hefðu borist alvarlegar hótanir sem hafa beinst að henni og fjölskyldu hennar.
„Mér finnst þetta fyrir neðan allar hellur og þetta er ekki það fólk sem við erum. Við erum ekki svona fólk. Og við eigum ekki að líða svona dónaskap og ógnanir, það er bara algjörlega …