Jón Ferdínand Estherarson, sem nýverið var kjörinn formaður Sósíalistaflokks Íslands með 63 prósent greiddra atkvæða, hefur vísað á bug ásökunum um óeðlilega framkvæmd aðalfundar flokksins og gagnrýnt hótanir um kæru vegna fundarins.
Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér segir hann að rangfærslur hafi birst í fjölmiðlum undanfarna daga um aðalfund flokksins sem haldinn var í Þingeyjarsveit um síðustu helgi. Þar voru samþykktar umfangsmiklar breytingar á skipulagi flokksins, ný forysta kjörin og ályktanir samþykktar, meðal annars um andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Segir fundinn hafa verið kynntan öllum félagsmönnum
Jón hafnar því að aðalfundurinn hafi verið haldinn með leynd eða að félagsmenn hafi ekki haft fullnægjandi upplýsingar um hann.
Samkvæmt yfirlýsingu hans var fundurinn kynntur á félagsfundum flokksins og fundarboð sent á alla skráða félagsmenn í tölvupósti ásamt ítrekun síðar.
Hann segir einnig rangt að fundargestir hafi ekki fengið upplýsingar um staðsetningu fundarins fyrr en eftir skráningu.
„Það var ekkert á huldu með þetta og allt mjög gegnsætt,“ segir í yfirlýsingunni.
Segir ekki hægt að starfa gegn flokknum og vera um leið félagi
Stærsti hluti yfirlýsingarinnar snýr að gagnrýni frá Söru Stef Hildardóttur og öðrum sem hafa komið að nýjum framboðum á vinstri væng stjórnmálanna.
Jón segir augljósan hagsmunaárekstur felast í því að einstaklingar sem bjóði fram gegn Sósíalistaflokknum eða gegni trúnaðarstörfum fyrir samkeppnisframboð séu áfram félagar í flokknum.
„Í öllum eðlilegum stjórnmálaflokkum gilda lög og reglur gegn slíku,“ segir hann.
Hann heldur því fram að hópur stuðningsmanna Sönnu Magdalenu Mörtudóttur og Gunnars Smára Egilssonar hafi unnið markvisst gegn flokknum frá því Gunnar tapaði í lýðræðislegri kosningu innan flokksins fyrir ári síðan.
Í því samhengi nefnir hann meðal annars að flokkurinn hafi verið látinn víkja úr húsnæði sínu, að hávær mótmæli hafi verið höfð uppi á fundum flokksins og að síðar hafi verið stofnað sérstakt mótframboð gegn honum.
Miklar breytingar samþykktar
Á aðalfundinum voru einnig samþykkt ný lög fyrir flokkinn, embætti formanns og varaformanns tekin upp í fyrsta sinn og ný miðstjórn kjörin.
Sæþór Benjamín Randalsson var kjörinn varaformaður án mótframboðs.
Einnig var samþykkt ályktun þar sem Sósíalistaflokkur Íslands lýsir yfir skýrri andstöðu við aðild Íslands að Evrópusambandinu og hvetur kjósendur til að hafna áframhaldandi aðildarviðræðum í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu síðar á árinu.
Óskar fyrrverandi samherjum velfarnaðar
Þrátt fyrir gagnrýni á fyrrverandi samherja segist Jón ekki líta á þá sem andstæðinga.
Í lok yfirlýsingarinnar segir hann miður að samstarf hafi ekki tekist eftir síðustu átök innan flokksins en óskar þeim sem nú starfa innan Vor til Vinstri og Vinstrisins góðs gengis.
„Við erum engir óvinir né andstæðingar, heldur samherjar í pólitískum skoðunum allra jafna,“ segir Jón Ferdínand.