Jökull SK-16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn í nótt. Þetta er í þriðja sinn sem báturinn sekkur í höfninni á sex árum. Fyrst sökk hann í Síðast sökk hann í september fyrir ári síðan og var þá lyft og dælt úr honum.
Jökull er 80 tonna trébátur, smíðaður í Þýskalandi árið 1959. Hann er gerður út frá Sauðárkróki af útgerðinni Gamli og synir ehf. Hann hefur verið bundinn óhreyfður við bryggju árum saman.
Guðmundur Fylkisson, sem er í hafnarstjórn, segir að báturinn hafi verið farinn að síga í gær og því voru settar upp dælur.
„Ég kíkti hérna niður á höfn um kvöldmatarleytið og þá var dælan í gangi. Hann var þá búinn að lyftast um einhverja 15 sentimetra frá því um miðjan dag. Mér skilst að hafnarstarfsmenn hafi séð til þess að dælurnar væru í gangi. En svo um sjöleytið í morgun var hann kominn á kaf,“ segir Guðmundur.
Í fyrri skiptin tvö fannst ekki skýring á því hvers vegna báturinn sökk. Guðmundur segir hann orðinn lélegan og líkur á að hann leki.
Fjölskyldan var ekki tilbúin að farga honum
„Það er fjölskylda sem á þennan bát og var ekki tilbúin að farga honum. En eftir hann sökk síðast gerði höfnin kröfu um það að báturinn yrði fjarlægður og það var sem sagt í vinnslu bara á næstu dögum að hann yrði tekinn á land og honum yrði fargað en svo bara sekkur hann í nótt,“ segir Guðmundur.
Guðmundur segir það almennt vera eigandans að sjá til þess að báturinn verði dreginn á flot aftur. Hann telur að kafarar kanni aðstæður áður en það verði gert.
„Svo þarf bara að koma honum upp á bryggju og rífa hann,“ segir hann.