Kanadískur maður að nafni Kenneth Law hefur játað sök í 14 ákæruliðum um að aðstoða fólk við sjálfsvíg í Kanada en hann seldi fólkinu eitruð efni á netinu.
Honum var gert að sök að hafa selt um 1.200 pakka af eitruðu efnunum til viðtakenda sem hann kynntist á spjallsvæðum um sjálfsvíg á netinu.
Fréttir af starfsemi Law hafa vakið mikla reiði frá því að hann var handtekinn árið 2023, en hann mun hafa sérstaklega leitað uppi fólk í sjálfsvígshugleiðingum á spjallsíðum og boðið því þjónustu sína. Saksóknarar í málinu töldu þó ekki mögulegt að fara fram á sakfellingu fyrir morð.
Refsiákvörðun verður tekin í september, þegar kanadískur dómstóll mun hlýða á vitnisburð fórnarlamba og aðstandenda þeirra, en sérfræðingar telja að hann gæti átt yfir höfði sér 10 til 20 ára fangelsisdóm.
Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Pieta samtökin, s. 552-2218, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og sorgarmidstod@sorgarmidstod.is, síma Pieta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.