Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi, um 50 kílómetra suðvestur af Eldey.Í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands sem barst á sjöunda tímanum í morgun kemur fram að tæplega 50 skjálftar hafi mælst með hléum frá því að hrinan hófst í gærkvöldi klukkan 21:55.Stærstu skjálftarnir til þessa hafa mælst 3,2 og 3,1 að stærð.Bent er á að hrinur sem þessar séu algengar á flekaskilunum sem þarna liggja, en svipuð hrina varð síðast á þessu svæði þann 25. júlí síðastliðinn.
Jarðskjálftahrina hófst á Reykjaneshrygg í gærkvöldi