Stjórnvöld í Tehran saka Atlantshafsbandalagið um að vera „samsekt“ í stríði Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran. Esmaeil Baqaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sakar NATO um að brjóta ófrávíkjanleg viðmið alþjóðlaga og grundvallarreglur stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna með svívirðilegum hætti.
Tilefni orða Baqaeis eru ummæli Mark Ruttes um stuðning bandalagsþjóða NATO í Evrópu við Bandaríkjaher á meðan á stríðinu í Íran stóð.
Á fundi þeirra Ruttes og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta lét Trump í ljós vonbrigði sín með lítinn stuðning NATO-ríkja í stríðinu.
Rutte framkvæmdastjóri NATO sagðist vita af einstaka atriðum sem Trump væri virkilega óánægður með. Hann áréttaði þó að bandamenn hans í Evrópu hefðu stutt við her Bandaríkjanna á síðustu mánuðum. Hann sagði að flugvélar Bandaríkjahers hefðu tekið á loft á bilinu fjögur til fimm þúsund sinnum frá evrópskum herflugvöllum á meðan á stríðinu stóð.
„Fimm hundruð bandarískar flugvélar tóku á loft frá herstöðvum Bandaríkjahers á Ítalíu til að styðja við [hernaðaraðgerðina] Epic Fury,“ benti Rutte meðal annars á.
Stjórnvöld á Ítalíu brugðust hratt við orðum Ruttes og sögðu þau gefa villandi mynd af þeim flugferðum sem stjórnvöld heimiluðu. Þaðan hafi ekki farið flugvélar sem voru á leið í árásir, heldur aðeins flugvélar sem sinntu flutningum og öðru sambærilegu.