Ísraelsher hefur ruðst enn lengra inn í Líbanon sunnanvert og hefur farið norður yfir Litani-fljótið um þrjátíu kílómetra norðan landamæra ríkjanna. Samkvæmt ályktun Sameinuðu þjóðanna bar Hezbollah-hreyfingunni að draga sveitir sínar norður fyrir fljótið svo tæknilega væru þær ekki við landamæri Ísraels.
Í tilkynningu Ísraelshers á Telegram segir að stórfelldum loftárásum hafi fyrst verið beint að liðsmönnum Hezbollah auk þess sem stórskotalið og skriðdrekasveitir hafi lagt til atlögu.
Einn ísraelskur hermaður er sagður fallinn í átökunum. Herinn kveðst reiðubúinn að ráðast enn lengra inn í Líbanon þyki honum þörf á. Ísraelsher hefur vikum saman gert árásir á Hezbollah þótt vopnahlé sé í gildi milli Ísraels og Líbanon.
Leiðtogar Hezbollah hafa lýst sig andvíga vopnahlénu, sem var framlengt um 45 daga 17. maí. Ísraelsher fyrirskipaði í gær brotthvarf íbúa sjö þorpa í Suður-Líbanon. Ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú tilkynnti um aukna framrás hersins í suðurhluta Líbanon og að þungar loftárásir hefðu verið gerðar þar.