Þetta kemur fram í nýrri árlegri skýrslu sem telur tugi ríkja og hópa á borð við Súdan, Haítí, Mjanmar og Sýrland. Sameinuðu þjóðirnar hafa skráð niður skipulegt kynferðisofbeldi Ísraelshers á Gaza og Rússlandshers í Úkraínu þrátt fyrir að aðalframkvæmdastjórinn Antonio Guterres hafi varað stjórnvöld ríkjanna við að þau gætu lent á svarta listanum.
Þess í stað var upplýsingum skipulega haldið frá rannsakendum að því er segir í skýrslunni sem verður afhent öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Kynferðisbrot í stríðum hafa að sögn skýrsluhöfunda færst í aukana milli 2024 og 2025, eru grimmilegri en áður og beinast helst gegn konum og stúlkum. Rússland og Ísrael hafa einnig komist á lista yfir þau ríki sem beita börn ofbeldi í stríði.
Vísbendingar eru uppi um að athæfi Ísraelshers, öryggissveita og fangavarða hafi þróast um nokkurt árabil en séu ekki alhliða fyrirskipanir að ofan. Skortur er þó á upplýsingum en í skýrslunni eru skrásett kynferðisbrot af ýmsu tagi gegn fjórtán karlmönnum, sjö konum, níu drengjum og einni stúlku á Gaza og Vesturbakkanum.
Meðal annars er greint frá hópnauðgunum, limlestingum kynfæra og líkamsleit án tilefnis. Stríðsfangar frá Úkraínu hafa greint frá kynferðisbrotum af hálfu hermanna og fangavarða eftir að þeir voru látnir lausir. Úkraínuher er ekki á svarta listanum en þó er getið 31 brots af hans hálfu fyrir árið 2025, einkum gegn rússneskum stríðsföngum.
Ísraelsk stjórnvöld segja skýrsluna skammarlega og fáránlega, þvertaka fyrir að hafa meinað rannsakendum aðgang og segja skýrsluhöfunda reyna að stilla Ísrael upp sem jafnoka Hamas, sem einnig er á listanum, hvað grimmdarverk snertir.
„Við höfum fengið nóg af þessum aðalframkvæmdastjóra,“ sagði Danny Danon fastafulltrúi Ísraels, sem bendir til að anda muni köldu milli Ísraels og Guterres þar til hann lætur af embætti í árslok.