Það er mikið um að vera í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi í dag því þar er opið hús og sumrinu fagnað með fjölbreyttum uppákomum. Hægt verður að fá nýhellt íslenskt kaffi í skólanum en kaffibaunir eru ræktaðar á staðnum og Þá er bananahúsið opið, ásamt öðrum gróðurhúsum fyrir gesti og gangandi.
Það er starfsmannafélag skólans, sem er með opna húsið en skólinn opnaði klukkan 10:00 í morgun og verður opið til klukkan 17:00. Allir eru velkomnir og ekkert kostar inn. Garðyrkjuskólinn er undir hatti Fjölbrautaskóla Suðurlands og eru um 100 nemendur í skólanum á Reykjum. Guðríður Helgadóttir er staðarhaldari og veit allt um opna húsið.
„Það er fastur liður hjá mjög mörgum að mæta hingað til okkar og fagna sumrinu á þennan hátt. Það eru öll húsin okkar opin og fólk hefur gaman af því að fara í gróðurhúsin og skoða til dæmis bananahúsið og verknámshús skrúðgarðyrkjunnar. Þar er svona innigarður og hægt að fá pylsur og fleira. Og hérna í aðalbyggingunni erum við með þetta frábæra markaðstorg þar sem hægt er að fá alls konar grænmeti. Það er líka hægt að fá kaffi og vöfflur í eldhúsinu,” segir Guðríður.
Rækta íslenskt kaffi
Svo er það íslenska kaffið, sem er ræktað í Garðyrkjuskólanum.
„Það má kannski segja að aðalaðdráttaraflið núna sé okkar eigið kaffi en við ræktum kaffi hér í bananahúsinu og erum búin að vera með það síðan 1952 sennilega og við söfnum þrúgunum af kaffirunnunum og verkum þetta allt saman,” segir Guðríður.
Hún segir að fjölmargir hafi heimsótt skólann fyrir hádegi og hún á von á miklum fjölda gesta eftir hádegi en sérstök hátíðardagskrá hefst klukkan 13:30 þar sem ýmis verðlaun verða afhent innan garðyrkjunnar.
„Það er náttúrulega fátt betra en að renna hingað austur, við erum hérna fyrir ofan Hveragerði og njóta blíðunnar. Það er alltaf gott veður hérna á sumardaginn fyrsta,” segir Guðríður í sumarskapi.