Íslenska þjóðin hefur hafnað því að taka upp að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið. Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem fram fór í gær liggja nú fyrir eftir að talningu lauk rétt í þessu í Suðvesturkjördæmi. Nei fékk 118.040 atkvæði eða 52,8 prósent en já 105.399, 47,2 prósent. Kjörsókn á landsvísu var 82,5 prósent.Já varð ofan á í Reykjavíkurkjördæmunum báðum en yfirburðir nei-sins voru miklir á landsbyggðinni en aðeins minni í Suðvesturkjördæmi. Hlutföll eru af greiddum atkvæðum en auðir og ógildir kjörseðlar eru þar ekki teknir með.
Íslenska þjóðin hafnar aðildarviðræðum við Evrópusambandið