Íslensk amma fór með bandarísku barnabarni á „prom“

Óvenjulegt og hjartnæmt par vakti athygli á árshátíðarballi (e. prom) framhaldsskólanema í borginni La Crosse í Wisconsin fyrr í maí þegar Avant Williams bauð ömmu sinni, Svölu Heller, með sér á ballið og uppfyllti þar með draum sem hún hafði átt frá barnsldri en Svala er íslensk.
Avant sagði við WXOW að amma hans hefði talað um þennan draum frá því hann var mjög ungur og að hann hefði snemma ákveðið að láta hann rætast.
„Ég hef hlakkað til þessa síðan ég var lítill. Þetta skiptir ömmu mína miklu máli og mér finnst mjög einstakt að geta tekið hana með mér á ballið,“ sagði hann.
Með þeim á ballinu var einnig besti vinur Avant, Ruben Smith, sem sagði kvöldið hafa verið einstaka upplifun.
„Ég er hér með besta vini mínum og ömmu hans og við erum bara að njóta dagsins. Það er ekki á hverjum degi sem maður fær að fara á ball með vini sínum og ömmu hans. Þetta er mjög einstakt,“ sagði Ruben.
Avant segir að það hafi skipt sig miklu máli að geta gert ömmu sinni þetta til geðs.
„Hún hefur alltaf verið til staðar fyrir mig. Það þýðir allt fyrir mig að geta látið draum hennar rætast,“ sagði hann.
Svala mætti einnig í viðtal vegna málsins.
„Ég kem frá Íslandi og við erum ekki með „prom“ á Íslandi. Ég hef alltaf viljað fara á „prom“. Eftir að hafa horft á bandarískt sjónvarp og allan þann glamúr sem fylgir því. Í 14 ár hefur hann sagt „Já, einn daginn fer ég með þig á „prom“. Guð minn góður, þetta er svo einstakt. Við eigum í mjög einstöku sambandi. Ég er að virða þetta fyrir mér og njóta hvers augnabliks.“