Tryggingafélagið Vörður hefur varað Íslendinga við læknastofu á eyjunni Gran Canaria vegna fjölda svikamála sem tryggingafélaginu hefur borist. Um er að ræða læknastofu sem kallast Clinic Diamond en þar mun starfsfólk bæði stunda það að ofmeðhöndla fólk sem þangað leitar og rukka það svo í kjölfarið um himinháar upphæðir. RÚV greindi frá málinu á miðvikudag en nú gerir Ágúst Mogensen, sérfræðingur Varðar í forvörnum, frekari grein fyrir málinu.
Ágúst segir að hér sé vonandi um að ræða fyrsta og eina skiptið sem Vörður varar við einstaka læknastofum. Þetta taldi Vörður þó nauðsynlegt í ljósi þess hversu margir Íslendingar heimsækja Gran Canaria á ári hverju. Ágúst skrifar í grein sem birtist hjá Vísi í dag:
„Þó að í þessu umrædda tilfelli sé um staðbundin tilvik á Kanarí að ræða þar sem íslenskir ferðamenn eru rukkaðir um fáheyrðar upphæðir fyrir einfalda læknisþjónustu. Þá fylgja svona dæmi oftast sömu uppskrift. Fólk á besta aldri leitar sér aðstoðar í góðri trú vegna veikinda á litlum læknastofum. Fólkið mætir góðu viðmóti og að því virðist frábærri þjónustu sem breytist í andstæðu sína, ofgreiningu, óþarfa læknisaðstoð og himinháan reikning. Fólk greiðir ýmist með korti eða reiðufé sem það sækir í hraðbanka, allt upp í 6 milljónir í útlagaðan kostnað. En hvernig geta grandlausir ferðmenn varið sig fyrir svona svikagildrum?“
Að mati Ágústs ætti fólk að leita til viðurkenndra aðila á borð við SOS neyðarþjónustu til að fá þaðan meðmæli um hvert skuli leita þegar veikindi bera að garði. Eins geti fólk haft samband við tryggingafélag sitt til að fá þar ráðgjöf. Ef um hópferð er að ræða sé gott að leita til fararstjóra.
SOS International er alþjóðleg neyðarþjónusta vegna veikinda og slysa sem ferðamenn hafa aðgang að allan sólarhringinn í gegnum ferðatryggingar, hvort sem um er að ræða kortatryggingu eða heimilistryggingu. Á vefsíðu þjónustunnar má finna gagnvirt götukort sem getur beint fólki að næstu heilsugæslu eða spítala sem þjónustan mælir með. Ef um neyðartilvik er að ræða eigi alltaf að hringja í neyðarnúmer í því landi sem viðkomandi er í og biðja um sjúkrabíl.
Loks bendir Ágúst á mikilvægi þess að hafa evrópska sjúkratryggingakortið meðferðis á ferðalögum innan EES-svæðisins. Með því að framvísa kortinu greiðir fólk sama verð fyrir þjónustu í opinbera heilbrigðiskerfinu innan EES og innfæddir gera. Það er hægt að sækja um sjúkratryggingakortið inni á island.is og best er að gera það tímanlega, eða að minnsta kosti tveimur vikum fyrir ferðalagið.