Þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um aðildarviðræður við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Tillaga þess efnis var samþykkt á Alþingi í dag með 34 atkvæðum stjórnarliða gegn 8 atkvæðum Miðflokksins. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn sátu hjá.
„Þegar upp er staðið verður það alltaf þjóðin sem ræður för. Og endanlegur samningur verður borinn undir þjóðina í annarri þjóðaratkvæðagreiðslu þegar samningaviðræðum lýkur,“ segir Kristrún Frostadóttir í færslu á samfélagsmiðlum. „Þetta er hin lýðræðislega leið sem boðuð var við myndun ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Loforð gefin – loforð efnd.“
Spurningin verður eftirfarandi: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“
Svarmöguleikarnir verða „Já“ og „Nei“.