Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, hefur verið í skeytasambandi við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra eftir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar varð ljós.
Þetta kemur fram í skilaboðum Mariu Tomasik, talskonu Costa, til fjölmiðla síðdegis.
Vilji til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins
Í skilaboðunum segir enn fremur að Costa hafi ítrekað þá virðingu sem Evrópusambandið beri fyrir lýðræðislegu vali Íslendinga og að Ísland sé áfram eitt af nánustu samstarfsríkjum Evrópusambandsins, ekki síst í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið.
Talskona Costa segir enn fremur að leiðtogarnir tveir hafi staðfest vilja sinn til að efla samstarf Íslands og Evrópusambandsins.
Fréttastofa RÚV kallaði í dag einnig eftir viðbrögðum frá framkvæmdastjórn ESB. Talsmaður þar sendi fréttastofu eftirfarandi skilaboð síðdegis:
Framkvæmdastjórnin hefur meðtekið niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á Íslandi og virðir ákvörðun íslensku þjóðarinnar. Ísland er áfram náið samstarfsríki Evrópusambandsins.