Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, bendir á að reglur um aldurslágmark barna sem mega starfa í vinnuskólanum í Vestmannaeyjabæ leiði til þess að börnum sé mismunað eftir afmælisdegi. Ef börnin hafa ekki náð 13 ára aldri mega þau ekki starfa í vinnuskólanum.
Þetta kemur fram í aðsendri grein á Vísir.is.
Íris greinir frá því að 54 börn, sem eru fædd árið 2013 og eru í 7. bekk, hafi sótt um starf í vinnuskólanum, en þar eiga þau að raka gras og týna rusl frá kl. 9 til 12 í fjórar vikur. En aðeins 20 af börnunum uppfylla þau aldursskilyrði að hafa náð 13 ára aldri þegar vinnuskólinn hefst. Íris skrifar:
„Staðan er hins vegar sú að aðeins 20 þessara barna uppfylla „aldursskilyrði“ við upphaf starfstímabils 6. júlí. Hin 36, sem eru 12 ára og verða 13 ára síðar á árinu, mega samkvæmt gildandi reglum ekki vinna. Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi samkvæmt þessu.
Þetta þýðir í reynd að við þurfum að hafna stórum hópi barna sem eru tilbúin, viljug og hæf til að taka þátt í starfinu vegna þess eins að þau ná ekki 13 ára aldri á tilteknum degi í júlí. Vinnueftirlitið hefur sagt skýrt að ekki er svigrúm til að víkja frá þessum reglum og að eftirlit verði haft með framkvæmd þeirra og stjórnvaldssektum beitt ef út af bregður. Sem sveitarfélagi ber okkur að fara að lögum og reglum, hvort sem okkur líkar betur eða verr.
En eftir situr spurningin: Hvert erum við komin þegar börn að verða 13 ára mega ekki raka gras eða tína rusl í 3 klukkutíma á dag í 4 vikur í skipulögðu og öruggu umhverfi vinnuskóla?“
Þurftu að hafna 34 börnum
Íris greinir frá því að bæjaryfirvöld hafi þurft að hafa samband við foreldra 34 barna og tilkynna þeim að börnin þeirra fái ekki að taka þátt í þessu starfi af því eiga ekki rétta afmælisdaga.
Erindi hefur verið sent til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins þar sem óskað er eftir endurskoðun á túlkun aldursviðmiða.
Íris kallar eftir úrbótum.
Sjá grein hennar hér.