Íranski herinn „hikar ekki við að verja landið“

Íranski herinn „hikar ekki við að verja landið“

Íranski herinn „hikar ekki við að verja landið“

Herstjórnin í Barein hefur virkjað hæsta viðbúnaðarstig landsins vegna árása íranska hersins í nótt. Yfirvöld segja markvissar árásir á óbreytta borgara og einkaeignir vera gróft brot á alþjóðlegum mannúðarlögum.

Í samtali við fjölmiðla segja yfirvöld í Barein loftvarnir hersins hafa stöðvað og eytt fjölda hættulegra loftárása Írans í viðleitni til þess að vernda konungsríkið. Þar segir jafnframt að Teheran haldi kerfisbundnum árásum sínum áfram með eldflaugum og drónum sem miði á óbreytta borgara.

Herinn þar í landi hefur hvatt almenning til að gæta varúðar og að snerta hvorki né fara nálægt „grunsamlegum hlutum sem stafi frá leifum hinnar grimmu írönsku árásar.“

Esmaeil Baghai, talsmaður utanríkisráðuneytis Írans, segir alþjóðasamskipti ekki eiga sér stað í tómarúmi. Þau þurfi að eiga sér stað við ásættanleg skilyrði til þess að skila árangri.

„Síoníska stjórnin er einnig að skaða þetta ferli með því að brjóta endurtekið á vopnahléinu í Líbanon,“ segir Baghai í samtali við fjölmiðla.

„Öll ferli stjórnmála hljóta skaða af þegar valdbeiting og ólöglegar aðgerðir eru í forgrunni.“

Baghai segir árásir Írans á Persaflóaríkin Kúveit, Barein og Jórdaníu sýna það að „herinn hiki ekki við að verja landið“. Hvar sem þess þurfi bregðist herir landsins við óvinum af styrk og ákveðni.

Ísraelski herinn hóf í dag röð árása í suðurhluta Líbanon eftir að hafa hótað áframhaldandi aðgerðum í morgun. Þá fyrirskipaði herinn íbúum þó nokkurra sveitarfélaga að flýja heimili sín tafarlaust.

Árásirnar hafa meðal annars hafnað á þremur sveitarfélögum nærri hafnarborginni Týros. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneyti Líbanon hafa átta manns fallið í árásunum.

Fyrr í vikunni hótuðu írönsk stjórnvöld því að ráðast á Ísrael ef það hætti ekki aðför sinni að Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld svöruðu hótunum Írana með því að heita áframhaldandi árásum sínum gegn Hezbollah-samtökunum. Meira en 3.660 hafa verið drepnir og 11.300 særðir frá því Ísraelsher jók umsvif árása sinna á Líbanon í mars. Um tvær milljónir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.

Esmaeil Baqaei, utanríkisráðuneytis Írans, segir árásir Bandaríkjamanna á skotmörk í suðurhluta Íran í nótt gera það að verkum að erfitt verði að tryggja áframhaldandi framgang friðarumleitana milli ríkjanna.

„Því miður eru Bandaríkjamenn að skaða þetta diplómatíska ferli með því að senda frá sér mótsagnarkennd skilaboð, breyta afstöðu sinni og kröfum endurtekið, og verst af öllu, með endurteknum brotum á vopnahléinu,“ segir Baquaei í myndskilaboðum sem íranskir fjölmiðlar birtu í morgun.

Hann segir það óhjákvæmilegt að valdbeiting og ólöglegar aðgerðir muni hafa neikvæð áhrif á framgang friðarviðræðna.

Samkvæmt írönskum fjölmiðlum hafa að minnsta kosti 20.000 Íranar misst aðgang að drykkjarvatni eftir að Bandaríkjamenn skutu niður tvö vatnsból í eldflaugaárásum sínum í nótt.

Í umfjöllun írönsku fréttastofunnar Tasnim er haft eftir Abdul Hamid Hamezehpour, forstjóra Hormozgan-vatns- og skólpsveitunnar, að tveir stærðarinnar steinsteyptir vatnsgeymar í Bamani-héraði hafi verið skotnir niður af eldflaugum Bandaríkjamanna og séu nú gereyðilagðir.

Forstjórinn segir vatnsbólin hafa útvegað bænum Kouhestak og 10 nærliggjandi þorpum drykkjarvatn. Hann segir neyðaraðgerðum hafa verið ýtt úr vör til þess að vinna á tjóninu. Þær feli meðal annars í sér flutning vatns á tankbílum og uppsetningu tímabundinna dælukerfa.

Kínversk og rússnesk stjórnvöld hafa brugðist við fregnum af átökunum milli Íran og Bandaríkjanna í nótt.

Stjórnvöld í Kína hafa lýst yfir þungum áhyggjum vegna átakanna og varað við slæmum afleiðingum þess ef ekki takist að koma í veg fyrir áframhaldandi árásir beggja vegna.

„Þeir sem málið varðar ættu að halda ró sinni, sýna hófsemi og grípa til raunhæfra aðgerða til að draga úr spennunni,“ sagði talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins á blaðamannafundi.

Rússnesk yfirvöld hafa einnig hvatt til þess að Íran og Bandaríkin haldi aftur af sér.

„Við höfum miklar áhyggjur af nýrri umferð vopnaðra átaka milli Bandaríkjanna og Íran, sem hófust með tilefnislausri árás Bandaríkjanna og Ísraels gegn íslamska lýðveldinu Íran,“ er haft eftir talskonu rússneska utanríkisráðuneytisins.

„Við hvetjum bæði ríki til þess að sýna aðgát og hætta árásum sínum tafarlaust.“

Góðan daginn og velkomin á þessa fréttavakt. Ég heiti Mist Grönvold og fylgist með framvindu mála í átökunum í Mið-Austurlöndum í dag.

Átökin milli Íran og Bandaríkjanna stigmögnuðust í nótt og hafa ekki verið harðari frá því í byrjun apríl þegar vopnahlé var komið á.

Á mánudag grandaði íranski herinn bandarískri þyrlu við strendur Óman. Í hefndarskyni segist miðstjórn Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum hafa gert nákvæmar árásir á loftvarnarkerfi Írana, stjórnstöðvar á jörðu og ratsjárstöðvar við Hormússund.

Í nótt gerði Íransher eldflaugaárásir á bandarískar herstöðvar í þremur ríkjum við Persaflóa, Barein, Jórdaníu og Kúveit, til þess að hefna fyrir árásir Bandaríkjanna. Hermálayfirvöld beggja ríkja hafa greint frá árásunum og segja loftvarnarkerfum landanna hafa tekist að bægja hættunni frá í bili.

Íranar segja Persaflóaríkin bera lagalega og siðferðislega ábyrgð á því að koma í veg fyrir atlögur herja Bandaríkjanna og Ísraels.

Hér að neðan má lesa fréttavakt næturinnar.

#ekki #herinn #hikar #við #íranski


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-10-iranski-herinn-hikar-ekki-vid-ad-verja-landid-477607

📰 Aðrar fréttir

Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
📅 25.10.2026 👁️ 0
Garðfuglakönnun yfir vetrarmánuðina hafin
Árleg garðfuglakönnun félagsins Fuglaverndar hófst í dag og stendur til 24. apríl. Kannanir hófust 1994 og tilgangur þeirra er að afla upplýsinga um f...
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Leikur á hnífs­egg í Brasilíu - Vísir
Kosningarnar eru hnífjafnar samkvæmt síðustu skoðanakönnunum og fara fram í skugga mikillar pólitískrar skautunar sem birtist einna skýrast í því að f...
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
📅 25.10.2026 👁️ 0
Fagur söngur fljótandi dívu dró marga að Reykjavíkurtjörn
Hátíðin var sett á kaffihúsi í miðbænum í dag. Því næst var gengið á milli staða og viðstaddir fengu að njóta óperu á hverjum stað. Óperudagar standa ...
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Er hægt að treysta aftur eftir fram­hjá­hald? - Vísir
Sæl og takk fyrir góða og mikilvæga spurningu. Það þarf ekki endilega að rjúfa öll tengsl við manneskjuna sem framhjáhaldið átti sér stað með til þess...
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
📅 25.10.2026 👁️ 1
Eðlilegt að fólki misbjóði dómur Landsréttar
Meira en átta þúsund undirskriftir hafa safnast á undirskriftalista þar sem þess er krafist að gerð verði óháð úttekt á meðferð kynferðis- og kynbundi...
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
📅 25.10.2026 👁️ 1
Letter making claims about Meghan's father written by his ex-wife, BBC understands
Roslyn Loveless, who has since died, divorced Meghan's father in 1975. Meghan said she had been informed about the "disturbing allegations" in 2018.
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35 - Vísir
„[Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi ...
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
📅 25.10.2026 👁️ 1
Mikill léttir að innviðaráðherra ætli að bæta fjármagni í Loftbrú
Þingmaður Samfylkingar í Norðausturkjördæmi segir mikinn létti að innviðaráðherra ætli að bæta við fjármagni í Loftbrú. Sú upphæð sem hann hafi kynnt ...
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
📅 25.10.2026 👁️ 1
Kartöflugeymslu breytt í lista- og menningarmiðstöð á Selfossi
Kartöflugeymslan var tekin í notkun 1952 og var notuð í tugi ára. Þar gátu íbúar geymt kartöflur sínar yfir veturinn. Húsið, sem kallast í dag Langhús...
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
📅 25.10.2026 👁️ 2
Board of Deputies of British Jews declares Greens to be racist party
The Jewish body's vote comes in response to the Green Party passing a "Zionism is racism" policy motion.
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
📅 25.10.2026 👁️ 2
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna
Fyrrverandi kennari í Síðuskóla sakar samstarfsfólk um einelti vegna skoðanaskrifa – segir nemendur hafa blandast í deiluna Fréttin25. október 2026Inn...
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu
Musk segir SpaceX hafa takmarkað Starlink í Úkraínu Úkra­ínskur varn­ar­mála­ráð­herra segir teng­ing­una nú stöðuga. Elon Musk segir að her lands­ins...
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Machado snýr heim eftir nær árs út­legð - Vísir
„Ég er hér. Með ykkur,“ skrifaði Machado á samfélagsmiðlum í dag. Bandamaður hennar, Edmundo González Urrutia, sem bauð sig fram gegn Nicolás Maduro í...
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
📅 25.10.2026 👁️ 2
Voru mannfórnir hluti af útförum egypskra konunga?
Lengi hefur verið deilt um hvort Egyptar hafi stundað mannfórnir við útfarir fyrstu konunga sinna.Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að þjón...
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Linda Dröfn og Tótla sjóð­heitt par - Vísir
Linda Dröfn, sem er 51 árs, hefur stýrt Kvennaathvarfinu í rúm fjögur ár en nýtt glæsilegt húsnæði athvarfsins var opnað fyrir nokkrum vikum. Í desemb...
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki áhyggjur af áhrifum á löggæslu á landsbyggðinni
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi lögreglumaður, segir viðbúið að skiptar skoðanir séu á fyrirætlunum. Gagnrýnisraddirnar séu þó ek...
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
📅 25.10.2026 👁️ 1
Manchester United - Michael Carrick future as manager under major threat
Michael Carrick's future as Manchester United manager is under major threat following the home loss to Bournemouth on Sunday.
Hvað á að gera við graskersgumsið?
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hvað á að gera við graskersgumsið?
Senn líður að hrekkjavöku sem vinnur sér sífellt sterkari sess sem tyllidagur hér á landi. Grasker og annar varningur tengdur hátíðinni er áberandi í ...
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í inn­viði - Vísir
Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins úr Suðurkjördæmi, segist deila áhyggjum íbúa á svæðinu vegna gjaldtöku á ferðamannastöðum. Staðrey...
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
📅 25.10.2026 👁️ 2
Opposition leader María Machado returns to Venezuela
Machado had left the country just a month before the US government seized Venezuelan President Nicolás Maduro.
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
„Jón Gnarr er ein mesta príma­donna Ís­lands­sögunnar“ - Vísir
Össur Skarphéðisson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra ræddi málefni Viðreisnar í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sagði h...
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 2
Skoðar að hækka fram­lag til Loftbrúarinnar - Vísir
„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrúna núna og fara í að styrkur á hvern fluglegg verði níu þúsund krónur,“ segir Eyjólfur í samtali við...
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
📅 25.10.2026 👁️ 2
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal
37 mótmælendur sagðir hafa slasast í Portúgal Tjald­búðir hafa risið í Lissabon og Porto und­an­farnar vikur vegna hús­næð­is­verðs. Mótmælin eru hlut...
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
📅 25.10.2026 👁️ 1
Innviðaráðherra vill hækka niðurgreiðslu Loftbrúar í 9000 krónur á fluglegg
Innviðaráðherra segir boðaðar breytingar á niðurgreiðslu Loftbrúar í endurskoðun.„Við erum að skoða að bæta við fjármagni í Loftbrú og fara þá í 9000 ...
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Hinn grunaði með geð­klofa og fluttur á geð­deild - Vísir
Árásin átti sér stað á föstudag í Yvelines-héraði sem er rétt vestan við París í Frakklandi. Hinn grunaði á að hafa ekið um bæinn Trappes og skotið út...
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
📅 25.10.2026 👁️ 2
Tragedy as 15-month-old baby boy dies at home in south Tenerife
A 15-month-old boy died at a home in Los Abrigos this morning, Sunday 25th October, despite efforts by emergency medical teams to save him.Guardia Civ...
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
📅 25.10.2026 👁️ 2
Suspect in deadly Paris suburb shooting sent for psychiatric observation
He will be observed to evaluate whether his "psychiatric health is compatible with pursuing his interrogation", authorities said.
Island Hopping in Greece and where to base yourself
📅 25.10.2026 👁️ 2
Island Hopping in Greece and where to base yourself
Island Hopping in Greece and Where to Base Yourself pairs Mykonos and Paros for a seven-night Cyclades holiday. Mykonos delivers golden beaches, fine ...
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
📅 25.10.2026 👁️ 1
Gerð ytri úttekt á slysi sem varð í tengivirki í Borgarfirði
Landsnet lætur gera ytri úttekt á slysi sem varð þann 30. september við tengivirki í Borgarfirði þegar ung kona varð fyrir rafstraumi. Slysið er til r...
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 1
Lægðin fyrr á ferðinni - Vísir
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir lægðina ná mestri dýpt á seinnipart fimmtudags í stað föstudagsmorguns eins og var reiknað var með. Hann seg...
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
📅 25.10.2026 👁️ 2
Stormur veldur rafmagnsleysi og samgöngutruflunum í Noregi
Mikið óveður hefur gengið yfir Suður-Noreg í dag en stormurinn Boelo hefur valdið mikilli rigningu og hvassviðri.Þúsundir heimila eru án rafmagns, tré...
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
📅 25.10.2026 👁️ 2
Early reports suggest record high turnout in Serbia elections
Serbia is heading to the polls as a student movement attempts to oust longtime populist leader Aleksandar Vučić.
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
📅 25.10.2026 👁️ 3
Björn Jón skrifar: Fegurð í hinu óhugnanlega
Mynd Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út rét
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
📅 25.10.2026 👁️ 4
Arnar Þór um þátt Gísla Marteins: „reyna samviskusamlega að hlæja“
Arnar Þór Jónsson sakar RÚV um að hafa ekki upplýst áhorfendur og hlustendur um ástandið í Frakklandi og áhyggjur þýskra bankamanna af framtíð evrunna...
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
📅 25.10.2026 👁️ 2
Vindorkugarðar áformaðir víða um land
Vindorkugarðar áformaðir víða um land Fyrsta vind­orku­verið á Íslandi hefur verið gang­sett og fleiri eru áformuð. Yfir fjöru­tíu hug­myndir eru um v...
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
📅 25.10.2026 👁️ 2
Góð kjörsókn í þingkosningum í Serbíu
Kjörsókn hefur verið mikil í Serbíu en þar fara þingkosningar fram í dag.Fyrrum forseti landsins, Aleksandar Vucic, rauf þing í september og boðaði ti...
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
📅 25.10.2026 👁️ 3
Five injured after yacht hits rocks near Lanzarote harbour
Five people have been injured when their sailing yacht ran aground near Órzola harbour in northern Lanzarote this morning, Sunday, leaving four of the...
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Stefna Anthropic fyrir brot á höfundar­rétti Presley - Vísir
Í stefnunni er því haldið fram að Anthropic, sem á gervigreindarmállíkanið Claude, hafi brotið gegn höfundarrétti 274 laga Presley. Þar á meðal eru he...
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
📅 25.10.2026 👁️ 3
Mikilvægt að Norðurlöndin séu meira samstíga í næstu krísu
Öryggis- og varnarmál verða í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi í vikunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem sækir þingið segir áherslu verða lagða ...
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
📅 25.10.2026 👁️ 2
Moscow to host 2030 World Weightlifting Championships
The International Weightlifting Federation becomes the first Olympic federation to choose Russia to host a world championships since its invasion of U...
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins - Vísir
Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála e...
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
„Fylgir því mikil skömm að eiga for­eldri í fangelsi“ - Vísir
Gefið var úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis í vikunni þar sem samtals voru úthlutaðar 18 milljónir króna til þrettán verkefna. Styrkupphæðirnar námu frá...
Laxveiði jókst um 35% milli ára
📅 25.10.2026 👁️ 3
Laxveiði jókst um 35% milli ára
12% meiri lax veiddist á stöng í sumar en á meðalári. Heildarfjöldi stangveiddra laxa var um 46.300 fiskar. Það er 35% meiri veiði en í fyrra.Þetta ke...
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
📅 25.10.2026 👁️ 3
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ - Vísir
„Við bara erum bara klárir í startholunum og bíðum þangað til við fáum nægilegt frost,“ Einar Bjarnason rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæð...
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
📅 25.10.2026 👁️ 3
British mum Leanne Gregory who died in Bahamas was celebrating wedding anniversary
Leanne Gregory, from Stapleford in Nottinghamshire, died trying to save her sons swept out to sea.
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
📅 25.10.2026 👁️ 3
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju
Íþrótt í fjötrum íslenskrar sérvitundar og forræðishyggju Fréttin25. október 2026Eldur Smári, Innlent, ÍþróttirLeave a Comment Emin Kadri. Eldur Smári...
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
📅 25.10.2026 👁️ 3
Skilur skiptar skoðanir á sameiningu lögregluembætta
Dómsmálaráðherra segir skiljanlegt að skoðanir séu skiptar á sameiningum lögregluembætta. Alls hafa tuttugu og ein umsögn borist í samráðsgátt um frum...
LA PERDITION – Glötun Frakklands
📅 25.10.2026 👁️ 3
LA PERDITION – Glötun Frakklands
LA PERDITION – Glötun Frakklands Fréttin25. október 2026Erlent, Hælisleitendur, Helga Dögg SverrisdóttirLeave a Comment Helga Dögg Sverrisdóttir skrif...
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
📅 25.10.2026 👁️ 4
Taika Waititi greinir frá sérstakri reglu í hjónabandinu sem hann og Rita Ora reyna að fylgja
Leikarinn og leikstjórinn Taika Waititi hefur opinberað eina reglu sem hann og eiginkona hans, söngkonan Rita Ora fylgja í sambandi sínu, í þeim tilga...
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
📅 25.10.2026 👁️ 4
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri
128 handteknir eftir miklar óeirðir og rán í Barselóna – 72 undir lögaldri Fréttin25. október 2026InnlendarLeave a Comment Miklar óeirðir brutust út í...