Bandaríkjaher gerði í gærkvöld röð loftárása á Íran, þrátt fyrir að ríkin hafi samið um vopnahlé í síðasta mánuði og áframhaldandi viðræður um innleiðingu viljayfirlýsingar um frið.
Stjórnstöð Bandaríkjahers segir herinn hafa hæft yfir 80 skotmörk, þar á meðal loftvarnarkerfi, ratsjárstöðvar, skotpalla fyrir flugskeyti, auk 60 smárra herskipa Íranshers. Árásirnar hafi verið gerðar í kjölfar árása Írana á þrjú flutningaskip við Hormsússund.
Íranski byltingarvörðurinn hét kröftugu svari við árásunum. Hann segir Íransher hafa beint dróna- og flugskeytaárásum að 85 bandarískum skotmörkum. Á meðal skotmarka voru flotastöð í Barein og flugherstöð í Kúveit.
Þá segir byltingarvörðurinn að MQ-9 Reaper dróni Bandaríkjahers hafi verið skotinn niður.
„Tími kúgunar er liðinn“
Bandaríkin afnámu í gær undanþágur frá viðskiptaþvingunum gegn Íran. Undanþágurnar, sem snéru að sölu á íranskri olíu, voru hluti af vopnahléssamkomulagi ríkjanna. Íranar hafa fordæmt afturköllun undanþáganna og segja þær skýr brot á vopnahléssamkomulaginu.
Það gerði meðal annars Mohammad Baqer Qalibaf, forseti íranska þingsins, í færslu á samfélagsmiðlinum X. Þar sagði hann að tími kúgunar væri liðinn og að Íranar ætluðu sér ekki að gefast upp.