Þegar hefur verið tilkynnt að Emmsjé Gauti, FM Belfast, Retro Stefson, Gugusar, Kusk & Óviti og Amor Vincit Omnia komi fram á hátíðinni í ár. Í gegnum tíðina hafa fjölmargir listamenn komið stigið á stokk á Innipúkanum og má þar nefna Dúkkulísurnar, Botnleðju, Diktu, Hjaltalín, Aron Can, Trabant, Mugison, Lay Low og svo mætti lengi telja.
Dagskrá Innipúkans 2026 er hér fyrir neðan en tilkynnt verður um plötusnúða á næsu vikum.
- Amor Vincit Omnia
- Álfgrímur
- Elín Hall
- Emmsjá Gauti
- FM Belfast
- Flesh Machine
- GDRN
- Geisha Cartel
- gugusar
- Ízleifur
- Joey Christ & Gestir
- Kusk & Óviti
- Hasar
- Lára Eggerts
- Múr
- Retro Stefson
- Sudden Weather Change
- Tatjana
Í tilkynningu kemur fram að fjölbreyttir viðburðir muni fara fram í kringum hátíðina en þá býðst gestum meðal annars að kíkja á Nískupúkann (flóamarkað Innipúkans), taka þátt í pop-quiz og sjá plötusnúða þeyta skífum en miðasalan er hafin á moment.is.