Ekkert minna var um dýrðir í ár en síðustu ár. Skipuleggjendur höfðu lýstu því yfir í kvöldfréttum Sýnar á föstudagskvöld að búist væri við stærsta Innipúka í sögu hátíðarinnar.
„Við erum afskaplega glöð og stolt yfir því hvernig hátíðin fór af stað. Mikil gleði í húsinu og frábær stemmning á báðum sviðum. Hreint magnaðir tónleikar hjá gugusar og tatjana til dæmis og Emmsjá Gauta sem lokaði stóra sviðinus með hvelli,“ er haft eftir Eldari Ástþórssyni hátíðarstjóra í tilkynningu.
Á dagskrá hátíðarinnar í ár má finna átján atriði alls.
Dagskrá Innipúkans í ár fer fram á tveimur sviðum.