Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Kjarni málsins - DV
⚠️ Eldri en 6 mánuðir

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Kjarni málsins - DV

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar: Kjarni málsins - DV

Í Innansveitarkroniku Halldórs Laxness segir að því hafi „verið haldið fram að Íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum … en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við, en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“

Sú umræða sem nú fer fram um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið fellur á stundum að þessari skilgreiningu.

Það stendur til að bjóða okkur að greiða atkvæði um hvort taka eigi upp samningaviðræður við ESB eða ekki. Leiði þessar viðræður til niðurstöðu sem stjórnvöld telja ásættanlega þá verður okkur boðið upp á að greiða atkvæði að nýju – að þessu sinni um samningsniðurstöðuna og samþykkja hana eða hafna.

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar skulum við tala um nokkur raundæmi.

Við vitum öll í stórum dráttum út á hvað Evrópusambandið gengur enda höfum við verið aukaaðilar að þessum félagsskap í gegnum EES-samninginn í rúm 30 ár. Ég held að flestir séu sammála um að þessi aukaaðild hafi gagnast okkur ágætlega og átt mikinn þátt í þeim mikla efnahagslega uppgangi sem við höfum notið æ síðan. Nú hafa stjórnvöld hins vegar áhuga á að kanna hvort við getum fengið meira út úr fullri aðild og vilja bera það undir þjóðina hvort þau eigi að hefja þá vegferð eða ekki. Þetta er inntak atkvæðagreiðslunnar í ágúst en ekki allt milli himins og jarðar sem ýmist hefur lukkast vel eða misfarist hjá Evrópusambandinu.

Margir sem vilja ekki fyrir nokkurn mun taka upp aðildarviðræður við ESB vísa í EES samninginn og segja hann duga okkur vel. Í þeim hópi er líka fólk sem tók þó einarða afstöðu gegn honum á sínum tíma og fann honum flest til foráttu.

Það gekk ekki átakalaust að koma EES-samningnum í gegnum Alþingi fyrir 30 árum og margvíslegri tafapólitík og málþófi var beitt í umræðunni og boðið upp á allskyns orðhengilshátt og titlíngaskít. Hætturnar sem hlytust af samningnum voru oft málaðar sterkum litum m.a. af Ólafi Ragnari Grímssyni þáverandi formanni Alþýðubandalagsins, sem hélt því m.a. fram að samningurinn byði þeirri hættu heim að útlendingar gætu eignast allar auðlindir landsins nema fiskveiðiauðlindina, sem var undanskilin í viðræðunum. Þá gætu útlendingar eignast öll lykilfyrirtæki í íslensku efnahagslífi án þess að við fengjum nokkra rönd við reist og við værum að opna íslenskan vinnumarkað fyrir 350 milljónum Evrópubúa.

Ég átti sjálf sæti í utanríkismálanefnd á þessum tíma og þegar samningurinn kom fyrst til umræðu í þinginu var ég höll undir þennan málflutning og sá hættur í hverju horni. Eftir ítarlega skoðun á samningnum skipti ég um skoðun og taldi hann okkur hagfelldan þó að ég gerði þann fyrirvara að í honum fælist fullveldisframsal sem stjórnarskráin heimilar ekki.

30 ára reynsla hefur auðvitað kennt okkur að þetta voru bara hryllingssögur málaðar á vegg í pólitískum tilgangi og áttu aldrei við rök að styðjast. Það er sjálfsagt að vera varkár í milliríkjasamningum og halda fast á íslenskum hagsmunum en við verðum líka að vera raunsæ og leggja skynsamlegt mat á hagsmuni og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Ísland er örríki sem mun aldrei hafa þungavigt í alþjóðasamskiptum en við þurfum að eiga greiðan aðgang að alþjóðastofnunum, láta rödd okkar heyrast og búa okkur til samningsstöðu þar sem þess er kostur ef við viljum ráða okkar málum í raun.

Aukaaðildin að ESB felur auðvitað í sér ákveðnar takmarkanir og veldur því að við eigum ekki aðild að stofnanakerfi sambandsins og þannig eigum við ekki beinan aðgang að undirbúningi mála og þeim samningaviðræðum sem fara fram í lokuðum herbergjum sambandsins. Fyrir vikið höfum við stundum misst af tækifæri til að halda fast á íslenskum hagsmunum.

Árið 2000 var t.d. innleidd ný raforkutilskipun hjá ESB um samtengdan raforkumarkað Evrópu sem við tókum upp í íslensk lög og íslensk stjórnvöld gerðu engan fyrirvara við, að því er virðist vegna þess að við áttum ekki aðild að undirbúningsvinnunni og höfðum ekki vara á okkur. Þetta hefur dregið langan dilk á eftir sér sbr. allar deilurnar um þriðja orkupakkann. Ef við hefðum setið við samningaborðið á undirbúningsstigi þessarar tilskipunar hefðum við getað haldið betur á okkar hagsmunum rétt eins og Kýpur og Malta sem voru heldur ekki tengd evrópska raforkumarkaðnum.

Andstæðingar aðildarviðræðna hafa líka margir hverjir útmálað Evrópu sem hnignandi heimsálfu og talið að okkur væri nær að vera framsýn og líta til vaxandi viðskiptavelda s.s. Indlands og Kína. Þeir hinir sömu segja líka að hvert ríki þurfi að meta hagsmuni sína eftir legu sinni og stöðu og það vill nú einfaldlega þannig til að landfræðilega er Ísland staðsett mitt á milli tveggja heimsálfa þ.e. Evrópu og Ameríku og menningarlega og pólitískt eigum við mest sameiginlegt með fólkinu sem þar býr. Við höfum hvorki mannskap né burði til að leggja heiminn að fótum okkar og virðumst oft eiga fullt í fangi með að fylgjast með því sem er að gerast hjá nágrönnum okkar. Við eigum að rækta góð tengsl við sem flesta en ég held að það sé farsælast að við einbeitum okkur að þeim löndum og svæðum sem við þekkjum sæmilega vel.

Í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar í ágúst skulum við reyna að halda okkur við kjarna málsins en drepa því ekki á dreif með orðhengilshætti og titlíngaskít. Málið er í sjálfu sér einfalt. Ef við teljum að Evrópusambandið sé vafasamur félagsskapur og það geti aðeins skaðað hagsmuni og sjálfsmynd Íslendinga að tengjast honum frekari böndum, þá tökum við auðvitað eindregna afstöðu gegn samningaviðræðum og segjum nei. Ef við erum hins vegar þeirrar skoðunar að okkur stafi engin sérstök hætta af Evrópusambandinu og reynsla okkar af aukaaðildinni sé í heildina tekið frekar góð þá óttumst við ekki frekari samningaviðræður og segjum já í þessum umgangi. Þegar samningsniðurstaða liggur fyrir getum við rætt allt milli himins og jarðar sem þar er að finna og samþykkt samninginn eða hafnað honum.

#gísladóttir #ingibjörg #kjarni #skrifar #sólrún

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/eyjan/2026/5/19/ingibjorg-solrun-gisladottir-skrifar-kjarni-malsins/

📰 Aðrar fréttir

Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
📅 24.11.2026 👁️ 0
Ný gögn varpa ljósi á gríðarlegt mannfall Rússa – Yfir 700 þúsund hermenn taldir hafa fallið
Rúmlega 700 þúsund rússneskir hermenn eru taldir hafa fallið í stríðinu í Úkraínu samkvæmt nýrri greiningu tveggja óháðra rússneskra fjölmiðla, Meduza...
Ministers ask public for views on changing age of consent
📅 24.11.2026 👁️ 0
Ministers ask public for views on changing age of consent
Some campaigners have argued that different limits should apply, depending on the age gap between the people involved.
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
📅 24.11.2026 👁️ 0
Nuclear test veterans will get full truth, says Burnham, as he confirms independent panel
The prime minister says a Hillsborough-style independent panel will examine the health legacy of Britain's Cold War-era atomic programme.
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
📅 24.11.2026 👁️ 0
Áform um djúpsjávarhöfn í Hvalfjarðarsveit
Ný djúpsjávarhöfn á að rísa í Hvalfjarðarsveit. Galtarhöfn ehf. áformar bygginguna og verkefnastjóri er Gunnar Þór Gunnarsson. Gert er ráð fyrir að hö...
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
📅 24.11.2026 👁️ 2
Bonnie Blue heldur áfram að hneyksla – Nú með því að bjóða upp á eigin brjóstamjólk
Breska klámstjarnan Bonnie Blue heldur áfram að valda usla með framgöngu sinni, nú með því bjóða ungum karlmönnum að drekka brjóstamjólkina sína. Hin ...
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
📅 24.11.2026 👁️ 2
Íslendingar efstir vestrænna þjóða á lista sem við viljum ekki vera á
Ísland er í efsta sæti vestrænna þjóða og í 20. sæti á heimsvísu í fjölda þeirra sem vinna tvær vinnur eða fleiri. Er það til merkis um að ein vinna d...
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
📅 24.11.2026 👁️ 3
Bjóða 90% afslátt af heitu vatni en laugin stendur enn tóm
Magnús Barðdal, sveitarstjóri Skagafjarðar, segir heilbrigðisráðherra benda á Heilbrigðisstofnun Norðurlands þegar hann leitar svara um hvort endurhæf...
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
📅 24.11.2026 👁️ 2
Telja að áhersla á hallalaus fjárlög geti aukið niðursveiflu
Konráð Guðjónsson hagfræðingur og Már Wolfgang Mixa, prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telja að ekki sé raunveruleg þörf á því að rík...
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
📅 24.11.2026 👁️ 2
Augljóst að Frederiksen sé að daðra við samsæriskenningu
„Það blasir alveg við að Mette Frederiksen slær í og úr og daðrar að einhverju leyti við kenninguna um útskiptin miklu eða The great replacement,“ seg...
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Netþrjótar komist inn í kerfi CIA - Vísir
AP segir að brotist hafi verið inn í kerfi tileinkað ákveðinni tegund upplýsingaöflunar sem reiði sig á gögn sem eru þegar aðgengileg á opinberum vett...
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 2
Kalkúnum stolið í skjóli nætur - Vísir
Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana þrjá og bjuggu þeir í fjárhúsi í nágrenni við Garðinn. Þær eru eins konar áhugabændur og ...
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Unnar hrelldi móður og son hennar – „lögga her lögga thar eg kem til thin tík“
Síbrotamaðurinn Unnar Sigurður Hansen var í dag dæmdur í 2 ára og 8 mánaða fangelsi fyrir rangar sakargiftir, hótanir og ógnanir gegn mæðginum auk ítr...
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Ætt­leiddur á fer­tugs­aldri - Vísir
Samkvæmt umfjöllun danska ríkisútvarpsins kom Christian á heimili fósturforeldra sinna Bente og Jes Thorup Børjesson fjögurra ára gamall. Hann hafði á...
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
📅 24.11.2026 👁️ 4
Þremur kalkúnum stolið í Garðinum
Þremur kalkúnum var stolið af ræktendum í Garðinum í Suðurnesjabæ um helgina. Sandra Björk Ingadóttir og Kristín Einarsdóttir áttu fuglana og hafa ver...
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
📅 24.11.2026 👁️ 2
Huawei found guilty of stealing trade secrets but acquitted of racketeering
The verdict follows a months-long trial in New York.
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fjögur koma til greina í forstjórastólinn
Fjórir umsækjendur koma til greina í starf forstjóra Landsvirkjunar eftir starfsviðtöl síðustu vikna. Viðskiptablaðið greinir frá.Samkvæmt heimildum V...
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
📅 24.11.2026 👁️ 3
„Hættulegir einstaklingar hafa komist upp með að hóta lögreglumönnum“
„Ef þú ert að stoppa einhverja menn sem eru þekktir glæpamenn, átt þú þá að hætta að stoppa þá? Áttu þá bara að hætta og leyfa þeim að halda áfram að ...
Efasemdir um Stafræna heilsu
📅 24.11.2026 👁️ 3
Efasemdir um Stafræna heilsu
Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að ...
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
📅 24.11.2026 👁️ 3
Himinlifandi með leiguverðið á Íslandi – Leigir þetta fyrir 82 þúsund krónur á mánuði
Pazos, ungur spænskur þjónn, sér ekki eftir því að hafa flutt til Íslands. Hann er ánægður með húsaleiguna og launin en viðurkennir að veðrið mætti ve...
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 4
Hug­rekki, mandarínur og máttur barnanna - Vísir
Ragnheiður Harpa er fædd árið 1988 og hefur komið víða við í bókmenntaheiminum en hún hlaut nýverið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir hand...
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Björgunarsveit á Djúpavogi grátt leikin við gjaldþrot fjölskyldufyrirtækis á Selfossi
Þann 21. október voru tvö fjölskyldufyrirtæki á Selfossi, í eigu sömu eigenda, lýst gjaldþrota. Samkvæmt heimildum DV á lítil björgunarsveit, Bára á D...
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
📅 24.11.2026 👁️ 2
Fimm úr sömu fjölskyldu fundust látin – Óhugnanlegt símtal til neyðarlínunnar
Harmleikur átti sér stað í Plant City í Flórída í Bandaríkjunum síðastliðinn fimmtudag þegar fimm manna fjölskylda fannst látin á heimili sínu.Lögregl...
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
📅 24.11.2026 👁️ 3
Skiptar skoðanir um Hagaskólamálið – „Er þetta framtíðin hjá okkur?“
„Mér fannst þetta bara fáránlegt. Ég skildi ekki hvaða erindi þessi frétt átti við okkur. Svo auðvitað komu fréttir um að þetta hafi verið alvarlegra ...
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Flateyringar ræddu ásýnd snjóflóðavarna á íbúafundi
Eftir snjóflóðið sem féll á Flateyri 2020 og fór að hluta yfir varnargarðinn þurfti að bæta við varnarmannvirkin fyrir ofan bæinn. Framkvæmdir hófustu...
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
📅 24.11.2026 👁️ 2
Aukið eftirlit við Mjódd eftir blóðuga árás
Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki...
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Barn mætti með þrívíddar­prentað vopn í skólann - Vísir
Þetta segir Grétar Stefánsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki staðfest nafn seinni skól...
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 2
Substance released at Don Toliver concert could be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
📅 24.11.2026 👁️ 3
Substance at Don Toliver Manchester show may be linked to robberies, police say
Police are investigating a possible link between the Co-op Live evacuation and reported robberies.
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
📅 24.11.2026 👁️ 4
Þurftu að flýja heimilið en enginn var ákærður
Það vakti athygli og óhug sumarið 2025 þegar greint var frá því að hópur vopnaðra og grímuklæddra manna hefði setið fyrir lögreglumanni við heimili ha...
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
📅 24.11.2026 👁️ 4
Engin átök og hópamyndun inni í Mjóddinni sjálfri
„Mín upplifun er að þetta sé svolítið rangur fréttaflutningur um Mjóddina. Hópamyndun ungmenna sem kemur fram í fréttunum á ekki heima hér inni í Mjód...
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
📅 24.11.2026 👁️ 5
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif
Kynþroskahemlar geta haft áhrif á beinþroska – óvissa ríkir um langtímaáhrif Fréttin24. nóvember 2026Erlent, Heilbrigðismál, Rannsókn, TransmálLeave a...
Fears over the AI boom haven't gone away
📅 24.11.2026 👁️ 4
Fears over the AI boom haven't gone away
There were legitimate fears before Huang's abrupt exit from Nvidia - and his return won't fix it
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í ruslpóstinn - Vísir
Sprengjuhótanir bárust ýmsum stofnunum og fyrirtækjum hér á landi í gærmorgun einnig. Ríkislögreglustjóri hefur sagt að lögregla taki hótununum alvarl...
Sprengjuhótun í grunn­skóla fór í rusl­pósti - Vísir

Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
📅 24.11.2026 👁️ 3
Gera ráð fyrir rúmlega 344 milljóna rekstrarafgangi
Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt í bæjarstjórn í dag. Áætlað er að rekstrarniðurstaða samstæðu verði jákvæð um rétt rúmar 344 ...
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
📅 24.11.2026 👁️ 6
Wedding car causes scandal in Gran Canaria
Police are investigating a wedding company in Gran Canaria after a car was driven along the pedestrian promenade at Las Canteras beach in Las Palmas, ...
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Halldór forviða eftir að hann heyrði sögu Guðmundar – Segir málið hafa kostað hann „frelsi og hugarró“
Halldór Karl Halldórsson, lögmaður, er undrandi á að Guðmundi Ólasyni, fyrrverandi forstjóra, fái ekki réttlæti eins og aðrir í Milestone málinu, þrát...
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
📅 24.11.2026 👁️ 5
Sacked London Pride boss given suspended prison sentence
The sentencing brings a long-running legal battle to an end.
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Farin að ná sama árangri og magaermi - Vísir
Erla Gerður Sveinsdóttir sérfræðilæknir í offitumeðferð ræddi þyngdarstjórnunarlyf í Reykjavík síðdegis. Þar segir hún miður að fólk sem þurfi ekki á ...
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
📅 24.11.2026 👁️ 5
„Ég held ég gæti gert betra Facebook en Facebook“
Hjónin Ragna Árný Lárusdóttir og Snorri Gylfason þróuðu og hönnuðu samfélagsmiðilinn Alvildu sem ætlaður er fimmtán ára og eldri. Notendur skrá sig in...
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
📅 24.11.2026 👁️ 4
Auglýsingatekjur hlaðvarpa margfaldast: „Ég er gríðarlega ánægður með þessa þróun“
Auglýsingatekjur hlaðvarpa voru rúmlega hálfur milljarður króna í fyrra. Tekjur þeirra hafa aukist stöðugt frá 2018 og tæplega tífölduðust á milli 202...
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
📅 24.11.2026 👁️ 5
Þörf á dýpri umræðu um gervigreind í „algerlega nýjum veruleika“
Miðflokkurinn hefur óskað eftir sérstakri umræðu um gervigreind á Alþingi, meðal annars til að ræða þátttöku Íslands í alþjóðlegu ákalli um öflug líkö...
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
📅 24.11.2026 👁️ 5
Pip disability benefit review calls for closer link with claimant costs
A government-commissioned report calls for a "rebalancing" of the amount paid to different claimants.
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
📅 24.11.2026 👁️ 4
Mikill þrýstingur á Mette Frederiksen vegna ummæla um útskipti
Mikill þrýstingur er á Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur eftir að hún lét orð falla í viðtali sem túlka má sem daður við samsæriskenninguna...
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
📅 24.11.2026 👁️ 5
Holiday Let owners in the Canary Islands face new 2027 deadline
Owners of holiday rental properties in the Canary Islands have been given more time to complete an important administrative requirement, with a new de...
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 3
Dætur Frið­riks léku fyrsta leikinn á minningarmóti - Vísir
Friðrik Ólafsson sem lést á síðasta ári níræður að aldri var fyrsti Íslendingurinn til að verða stórmeistari, árið 1958. Hann varð sexfaldur Íslandsme...
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
📅 24.11.2026 👁️ 5
Enn selji Danir okkur maðkað mjöl - Vísir
Tilefnið er umfjöllun um danska hveitiframleiðandann Valsemøllen. Vísir greindi frá því fyrir helgi að ummerki eftir dýr og myglu hefðu fundist í korn...
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
📅 24.11.2026 👁️ 4
Nvidia shares slide as Trump's role in Jensen Huang's comeback questioned by US politicians
Nvidia's stock market value surged on the annoucement of Huang's reappointment, but some of the gains reversed in Tuesday trading.
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
📅 24.11.2026 👁️ 5
US attorney general dodges questions about Nvidia investigation
Nvidia's share price have fallen 7% as lawmakers demand answers about President Donald Trump's involvement in Huang's reinstatement.
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
📅 24.11.2026 👁️ 4
Ertu að skera alls konar úr mataræðinu? - Ragnhildur ráðleggur þetta í staðinn
Pistlar Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðings, betur þekkt sem Ragga nagli, sem skrifaðir eru á mannamáli njóta mikilla vinsælda á Facebook-síðu hennar....