Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra, segist vonast til að verða ekki lengi í tímabundnu veikindaleyfi.
Í stuttu myndskeiði sem hún sendi út beint á Facebook biður hún vini sína að sakna sín ekki allt of mikið.
Segist hún búast við að koma til baka, „eldhress, fyrr en seinna“ og að hún hlakki til þess.