Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvað veldur menguninni en starfsmenn tæknideildar sveitarfélagsins Fjallabyggðar eru sagðir vinna að því að finna orsök hennar. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Fjallabyggð en umrætt sýni var tekið á mánudag. Þá er íbúum á Siglufirði bent á sérstakar leiðbeiningar um suðu neysluvatns á vef Heilbrigðiseftirlitsins.
Hyggst Heilbrigðiseftirlitið upplýsa íbúa þegar búið er að ljúka nauðsynlegum úrbótum á vatnsveitunni og vatnsgæði hafa verið endurheimt.