Tískumógúllinn Victoria Beckham er hvergi nærri því að vera hætt störfum í tískuheiminum. Hún segist einfaldlega elska það sem hún gerir.
„Ég elska fólkið sem ég vinn með,“ sagði hún í nýlegu viðtali við breska dagblaðið The Times.
„Satt að segja myndi mér leiðast hræðilega. Mér myndi leiðast mjög, mjög mikið. Ég elska að vera upptekin,“ svaraði hún þegar hún var spurð að því hvort hún hygðist fara á eftirlaun bráðlega.
Beckham, sem er 52 ára, átti áður farsælan tónlistarferil með Spice Girls áður en hún stofnaði fatamerkið sitt, Victoria Beckham. Hún er á miklu flugi þessa dagana.
„Ég held líka að það sé mjög gott fyrir börnin að sjá hversu ástríðufull ég er gagnvart vinnunni minni,“ sagði Beckham, sem á fjögur börn með eiginmanni sínum David Beckham.
„Þau sjá líka vinnusemina sem bæði ég og David höfum. Ég held að það sé gott fyrir börnin að sjá það og það er yndislegt fyrir okkur að sjá að börnin okkar hafa ástríðu. Þau hafa vinnusiðferði. Þau eru metnaðarfull,“ sagði hún.
„Ég held líka að þegar maður á börn verði maður að leiða með góðu fordæmi.“
Beckham hefur einnig verið viðfangsefni nokkurra heimildamynda, þar á meðal Netflix-þáttaseríu árið 2025. Í þriggja þátta seríunni, sem ber heitið Victoria Beckham, ræddi hún meðal annars um það þegar tískufyrirtæki hennar stóð nærri því að fara á hausinn.
„Ég missti næstum allt og þetta var mjög dimmur tími. Ég grét áður en ég fór í vinnuna á hverjum degi því mér leið eins og slökkviliðsmanni. Við vorum tugmilljónum skuldug,“ sagði Beckham.
„Já, ég fór heim til eiginmannsins míns, en ég fór líka heim til viðskiptafélaga míns. Þannig að ég talaði við hann um þetta. Ég varð að gera það. Hann hafði fjárfest í þessu. Og ég hataði það. Ég hataði það virkilega.“
Hún fann síðar viðskiptafélagann David Belhassen sem sagði henni að hún yrði að vera tilbúin að breyta öllu og endurskipuleggja fyrirtækið svo það gæti lifað af.
„Hluti af vandamálinu var að fólk var mjög hrætt við að segja nei við mig,“ sagði Beckham.
„Fólk hélt að ég væri ekki vön að heyra orðið nei. Ég viðurkenni alveg mín mistök og tek ábyrgð á því sem ég hefði átt að gera öðruvísi. Ég var skuldsett. Það var margt sem ég þurfti að breyta.“