Hvert hitametið á eftir öðru hefur fallið í Evrópuríkjum í dag vegna hitabylgju sem gengur yfir álfuna. Á Spáni eru tvö dauðsföll rakin beint til ofhitunar og í Frakklandi eru 45 dauðsföll rakin til hitabylgjunnar.
50 ára gamalt hitamet féll
Hitamet féll í Bretlandi í dag þegar 36,1 stig mældist í Gosport í Hampshire í suðurhluta Englands. Þetta er mesti hiti sem mælst hefur í júnímánuði. Fyrra met var sett fyrir 50 árum þegar 35,6 stig mældust í Southampton í hitabylgju 1976.
Dagurinn var einnig sá heitasti það sem af er ári í Skotlandi. Hiti mældist mestur 29,4 stig í bænum Dyce í Aberdeen. 29 stiga hiti mældist einnig í Aboyne í Aberdeenshire, Leuchars í Fife og Edinborg.
Talsverðar samgöngutruflanir hafa verið vegna hitans og margar lestarferðir fallið niður. Fréttamaður breska ríkisútvarpsins, BBC, er á Euston-lestarstöðinni í Lundúnum og lýsir fjölmenni. Fjölmörgum ferðum hafi seinkað og aðrar verið felldar niður.
Margir brautarpallar séu lokaðir og fólk noti litlar viftur til að kæla sig niður. Aðrir sitji á gólfinu með vatnsbrúsa við hönd.
Rauð viðvörun vegna hita er í gildi á nokkrum stöðum á Englandi og í Wales til miðnættis annað kvöld. Önnur viðvörun hefur verið gefin út fyrir laugardaginn fyrir suður- og austurhluta Englands.
Mesti meðalhiti í júní síðan 1950
Hitamet féll einnig á Spáni þar sem mesti meðalhiti í júní síðan 1950 mældist. Hiti fór yfir 39 stig í Bilbao í dag. Búist er við að það dragi úr hitanum í mestöllu landinu næstu daga. Þó verða enn rauðar viðvaranir vegna hita á nokkrum stöðum í Baskalandi.
Tvö dauðsföll á Spáni eru rakin til hitabylgjunnar. Kona á tíræðisaldri í Bilbao lést eftir að hafa fengið hitaslag og maður á sjötugsaldri í Ameria dó einnig úr hitaslagi.
Viðbúið var að hiti færi yfir 35 stig hjá tæplega 100 milljónum manna í Evrópu, samkvæmt mati AFP-fréttastofunnar. Auk þess bjóst hún við yfir 30 stiga hita hjá yfir 350 milljónum, meira en tveimur þriðju íbúa álfunnar.
Aftur mesti hiti á frá upphafi mælinga
54 veðurstöðvar af 96 í Frakklandi hafa skráð 40 stiga hita eða hærri síðan hitabylgjan byrjaði 17. júní, samkvæmt nýrri greiningu AFP. Þessi hái hiti mældist aðallega í vestur- og suðurhluta Frakklands.
Í dag var heitasti dagur frá upphafi mælinga, sem hófust 1947. Fyrra met var sett í gær. Meðalhiti dags og nætur mældist 30 stig sem er litlu meira en í gær þegar meðalhitinn var 29,8 stig. Hiti fór yfir 40 stig í höfuðborginni París og á fleiri stöðum í landinu í dag.
Að minnsta kosti 40 hafa drukknað í ám og vötnum undanfarna daga. Dauðsföll þriggja eldri borgara sem bjuggu nærri Bordeaux eru einnig rakin til hitans og tvö börn fundust látin í bíl í suðurhluta Frakklands.