Það eru fáir hlutir jafn umdeildir í New York og spurningin hvar er hægt að fá bestu pítsuna? Nú hefur ferðalagasíðan Condé Nast Traveler tekið saman lista yfir uppáhaldspítsustaði heimamanna og niðurstöðurnar sýna að bestu sneiðarnar finnast gjarnan fjarri stærstu ferðamannasvæðunum.
Fyrir mörgum New York-búum skiptir stemningin og hverfið nánast jafn miklu máli og pítsan sjálf.
Meðal staða sem heimamenn mæla sérstaklega með er Mama's Too á Upper West Side. Staðurinn hefur vakið mikla athygli fyrir þykka rómverska pítsu. Þá fær Scarr's Pizza á Lower East Side mikið lof fyrir klassíska New York-pítsu með stökkri skorpu og sterka hunangið sem er geysilega vinsælt í dag.
Einn þekktasti staðurinn á listanum er þó án efa Lucali í Brooklyn. Þar myndast reglulega langar biðraðir en staðurinn er mjög vinsæll og nánast goðsagnakenndur.
Þá eru tveir staðir þekktir fyrir bökur í Detroit-stíl, en það eru þykkar og kassalaga pítsur, og heita þeir Ace's Pizza og Turbo Pizza.
Fyrir þá sem vilja aðeins rólegri stemningu er bent á að heimsækja staði eins og Ops þar sem súrdeigspítsa og náttúruvín fara saman. Sofia Wine Bar er einnig vinsæll en sá staður er þekktur fyrir Diavolo-pítsuna með æðislegum Burrata-osti.
Það er hægt að fá æðislegar bökur á mörgum stöðum í borginni og heimamenn segja bestu staðina vera litlu hverfispítsastaðina sem fólk heimsækir aftur og aftur.
