Hafrannsóknarstofnun leggur til að veiðar á langreyði verði ekki meiri en 150 dýr á komandi veiðitímabili. Þetta er 20 prósenta lækkun frá fyrri ráðgjöf. Samkvæmt tilkynningu frá Hafrannsóknarstofnun var ráðgjöfin lækkuð í varúðarskyni því niðurstöður talninga frá 2024 hafi ekki verið samþykktar af nefndum innan Norður-Atlantshafs Sjávarspendýraráðsins, NAMMCO.
Engar hvalveiðar hafa verið við Íslandsstrendur síðustu tvö ár. Bjarni Benediktsson, þá starfandi matvælaráðherra, gaf út leyfi til hvalveiða til næstu fimm ára í lok 2024. Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf. sagði síðasta vor að hvalveiðar myndu ekki borga sig það sumarið og því var enginn hvalur veiddur í fyrra.
Engar hvalveiðar síðustu tvö ár
Hvorki hrefnur né langreyðar voru veiddar 2024 þrátt fyrir að leyfi væri fyrir hendi. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þáverandi matvælaráðherra, veitti leyfið eftir að hvalveiðitímabilið átti að hefjast og varð því ekkert af veiðunum.
Umboðsmaður Alþingis telur að málsmeðferð matvælaráðuneytisins á umsókn um leyfi til hvalveiða árið 2024 hafi ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög, að því er fram kemur í áliti sem birt var í janúar.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sagðist ósammála áliti umboðsmanns Alþingis um að málsmeðferðartími vegna umsóknar um leyfi til hvalveiða árið 2024 hefði verið of langur. Frumvarp til laga um bann við hvalveiðum verði að líkindum lagt fram á haustþingi.
Fréttin hefur verið uppfærð.