Í kvöldfréttum Sýnar var sýnt beint úr Reykjavíkurhöfn þar sem hvalbátarnir tveir lágu hlið við hlið, báðir nýkomnir úr klössun. Giska má á að hún kosti fleiri milljónir króna á hvort skip og kannski tíu til tuttugu milljónir króna fyrir þau bæði. Það þarf því vart að velkjast í vafa um það að stefnt er á hvalveiðar í sumar.
Stærri hvalbáturinn, Hvalur 9, gekkst undir klössun í fyrri hluta maímánaðar og síðdegis var Hval 8 rennt niður úr dráttarbraut Orms og Víglundar. Tveir dráttarbátar Faxaflóahafna tóku svo við Hval 8 og ýttu honum upp að Hval 9 við Ægisgarð, eins og lýst var í frétt Sýnar:
Langreyðarkvóti sumarsins liggur fyrir. Samkvæmt honum er heimilt að veiða allt að 150 dýr. Það er þó skilyrt að 34 þeirra verði veidd austan við land, sem þýðir lengri siglingu á miðin og þar af leiðandi meiri kostnað á tímum þegar olíuverð er í hæstu hæðum.
Hvalveiðarnar hafa venjulega hafist í fyrrihluta júnímánaðar og staðið fram eftir septembermánuði. Það má því búast við að landfestar verði leystar eftir hálfan mánuð eða svo og hvalbátarnir sigli þá á miðin.
Miðað við reynslu fyrri vertíða má ætla að um 150 manns fái vinnu við hvalveiðarnar í sumar, bæði á skipunum við veiðarnar og við vinnsluna í hvalstöðinni í Hvalfirði.