Nýjar ljósmyndir sem birtar voru af leikaranum David Caruso hafa skotið fólki skelk í bringu. Sjónvarpsstjarnan sem heillaði fólk í lögguþáttum á tíunda áratugnum og í upphafi aldarinnar er gjörbreyttur. Á einni myndinni skartar hann flennistórri „pípararauf“.
Caruso hóf leikferil sinn í kvikmyndum á níunda áratugnum en sló í gegn í lögguþáttunum NYPD Blue um miðjan tíunda áratuginn. Í upphafi aldarinnar náði hann svo miklum vinsældum sem lögreglumaðurinn Horatio Caine í þáttunum CSI: Miami.
Það hlutverk lék hann í tíu ár, eða þar til ársins 2012 þegar framleiðslan hætti. En þá setti Caruso einnig punkt aftan við feril sinn sem leikari.

Síðan þá hefur Caruso látið lítið fyrir sér fara og sést sjaldan á blaðsíðum glanstímaritanna. Þess í stað hefur hann gerst listmunasafnari og opnaði fatabúð í Miami sem kallast Steam of Sunset.
Eins og segir í frétt The Daily Mail hefur Caruso margoft verið boðin hin ýmsu hlutverk eða störf við kvikmynda eða þáttagerð undanfarin ár en ávallt hefur hann hafnað tilboðunum. Virðist sem svo að hann sé sáttur við hið rólega líf utan glamúrsins sem fylgir Hollywood.
Caruso er nú orðinn 70 ára gamall og eins og sést á myndunum er hann farinn að grána vel í vöngum. Þá virðist hann lítt umhugað um fyrri ímynd sína sem harðjaxl þar sem á einni myndinni má sjá hann með væna pípararauf.