Geðlæknirinn var meðal þeirra sem báru vitni fyrir dómi þegar aðalmeðferð málsins hélt áfram í dag. Á föstudag var tekin ógnarlöng skýrsla af Ming Ting sjálfri en lesa má um hana í fréttinni hér að neðan:
Geðlæknirinn kom fyrir dóminn eftir að hafa gert geðmat á Ming Ting sem dómkvaddur matsmaður. Hann sagði að niðurstaða geðmatsins hafi í stuttu máli verið að Ming Ting glími ekki við neina geðræna erfiðleika.
Spurð urað því hvort Ming Ting sé sakhæf sagði geðlæknirinn að slíkt mat væri lögfræðilegs eðlis en að hans mati væri ekkert sem benti til þess að refsing gæti ekki borið árangur.
Hefi ekki verið undir hælnum á eiginmanninum
Geðlæknirinn sagðist hafa rætt þrívegis við Ming Ting, í júlí, ágúst og október í fyrra. Meðal þess sem þau hafi rætt væri hvort mögulegt væri að Ming Ting hefði verið undir hælnum á eiginmanni sínum og hann hefði neytt hana til þess að myrða dóttur þeirra og svo sjálfa sig í kjölfarið.
Hún hefði sagt að samband þeirra hefði verið á jafningjagrundvelli og hann hefði ekki getað neytt hana til að gera nokkurn skapaðan hlut.
Bauðst til að lifa áfram og styðja dótturina
Þá sagði geðlæknirinn að Ming Ting hefði sagt að dóttir þeirra hefði sjálf ákveðið að láta lífið samhliða foreldrum sínum.
Eiginmaður hennar hefði verið veikur og ekki viljað lifa lengur og hún hefði ekki viljað lifa án hans. Hún hefði þó boðið dóttur þeirra að lifa áfram til þess að styðja hana en hún afþakkað það boð og frekar sagst vilja láta lífið með þeim. Þá hefði hún einnig afþakkað að lifa foreldra sína en fá stuðning frá frænku sinni.