Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum í borginni Nazca skammt frá slysstað var um að ræða flug á vegum ferðaþjónustufyrirtækis sem býður ferðamönnum upp á að sjá Nazca-línurnar úr flughæð.
Nazca-línurnar eru risavaxnar myndir sem skornar hafa verið í jarðveginn í eyðimörkinni í nágrenni við borgina Nazca fyrir mörgum öldum síðan af þáverandi íbúum svæðisins. Myndirnar eru af ýmsum dýrum og kynjaverum og sjást aðeins úr lofti.
Flugvélin tók á loft af flugvelli í bænum Ica og var á vegum ferðaþjónustufyrirtækisins Aerodiana. Félagið hefur boðið upp á slíkar skoðunarferðir í fjórtán ár um borð í vélum af gerðinni Cessna Grand Caravan.
Í yfirlýsingu sagði ferðamannaráðuneyti Perú að ellefu erlendir ferðamenn hefðu farist í slysinu auk tveggja flugmanna.