Bandaríkjaþing þarf að samþykkja umfangsmikla vopnasendingu til Ísraelsríkis sem bandarískir miðlar segja 2,8 milljarða dala virði. Viðskiptin séu einhver þau umfangsmestu á undanförnum árum og fjármögnuð með skattfé.
The Washington Post segir Bandaríkin ætla að afhenda Ísraelsstjórn fjöldann allan, tugþúsundir af skæðustu sprengjum og sprengjuoddum sem finnast í vopnabúrum Vesturlanda.
The New York Times hefur eftir ónafngreindum embættismanni að Trump-stjórnin hafi þegar samþykkt viðskiptin.
Háttsettur embættismaður vildi í samtali við AFP ekki tjá sig sérstaklega um viðskiptin við Ísrael en sagði alla vopnasölu til útlanda fara viðeigandi leið innan stjórnkerfisins. Talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði starfsreglur ekki leyfa að greint verði frá fyrirhugaðri sölu fyrr en formleg tilkynning hafi verið send þinginu.
Samningurinn við Ísrael vakti athygli í ljósi þess að Bandaríkjaher glímir við skotfæraskort vegna stríðsins við Íran. Bandaríkjamenn vörðu 22,3 milljörðum dala til vopnakaupa frá febrúarlokum til loka júní.
Ríkisstjórn Joes Biden hafði bannað sendingar á tvö þúsund punda sprengjum til Ísraels vegna mikils manntjóns á Gaza en Donald Trump sneri þeirri ákvörðun við um leið og hann komst til valda. Þá samþykkti Trump-stjórnin sölu á sprengjum, flugskeytum og tengdum búnaði til Ísraels fyrir meira en 7,4 milljarða dala.