Sannkallað maíhret herjar nú á bændur í inndölum Austurlands.
Gísli Pálsson, bóndi á Aðalbóli í Hrafnkelsdal, segir í samtali við mbl.is að hret sem þessi, sem teygi sig nánast inn í júnímánuð, hafi herjað á svæðið síðastliðin þrjú ár.
Blessunarlega er ekki útlit fyrir að hretið muni vara mikið lengur. Hlýna á í veðri austan til nú um helgina.
Skepnurnar komnar í skjól
Ágætt væri að sleppa við hretið að sögn Gísla en hann er þó öllu vanur og lætur það ekki á sig fá.
„Þetta er orðið árvisst núna, allavega síðastliðin þrjú ár. Það er spurning hvað þetta varir lengi. Þetta verður væntanlega styttra en fyrir tveimur árum. Þá varði þetta langt inn í júnímánuð.“
Bóndinn er með töluverðan búskap, rúmlega þúsund skepnur. Vorhretið setur því strik í reikninginn.
„Það þarf að koma þessu öllu í skjól. Þetta er það leiðinlegt, það reddast allt saman. Sumarið kemur alltaf fyrir rest,“ segir Gísli.
