Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst hótun í gegnum Neyðarlínuna í nótt um að sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipa Hvals hf. og að hann yrði virkjaður ef skipin héldu aftur til veiða. Sama hótun barst fréttastofu RÚV með tölvupósti í morgun.
Þrjár langreyðar hafa verið skotnar
Fyrstu tveimur langreyðum tímabilsins var landað í Hvalstöðinni upp úr klukkan fjögur í nótt og kemur Hvalur 8 inn til löndunar í kvöld með þá þriðju. Sprengjuhótun barst í fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra í gegnum Neyðarlínuna í nótt, þar sem tilkynnt var að einhverskonar sprengibúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipinu. Verði hvalveiðum framhaldið verði búnaðurinn virkjaður.
Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, staðfestir í samtali við fréttastofu, að málið sé til rannsóknar.
„Við fengum þessa tilkynningu eða fjarskiptamiðstöð fékk þessa tilkynningu og málið er hjá mér vegna þess að starfsemin er í okkar umdæmi og við erum að skoða þetta út frá því.“
Símtalið hafi verið rakið til Bretlands, en unnið sé að því að finna út nákvæma staðsetningu. Hótunin sé flokkuð sem ótrúverðug hótun.
Hvalveiðiskip Hvals áður orðið fyrir skemmdarverkum
Tveimur bátum Hvals var árið 1986 sökkt af aðgerðarsinnum frá bresku samtökunum Sea Sheperds. Samtökin unnu einnig skemmdarverk á hvalvinnslustöð í Hvalfirði.
Hér má hlusta á frétt RÚV frá árinu 1986 þar sem Paul Watson, einn meðlima Sea Sheperds staðfestir að samtökin hefðu staðið að baki skemmdarverkanna sem unnin voru á hvalveiðiskipunum.