Mennta- og barnamálaráðherra telur það koma vel til greina að upphaf skóladags í framhaldsskólum sé sveigjanlegra en nú er.
Þetta kemur fram í svari Ingu Sæland við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um upphaf skóladags í framhaldsskólum. Þar segir að ráðherra hafi ekki átt formleg samtöl, eða unnið greiningar vegna þess möguleika að seinka upphafi skóladagsins. Ráðuneytið hafi þó stutt við verkefni embættis landlæknis og vísar í handbók um geðrækt í framhaldsskólum sem embættið gefur út.
Þar kemur meðal annars fram að samkvæmt bandarískum rannsóknum verði nætursvefn ungmenna betri ef upphafi skóladags er seinkað. Unglingar fari áfram að sofa á sama tíma á kvöldin, en fá lengri nætursvefn fyrir vikið. Mæting nemenda batnaði, dagsyfja og einkenni þunglyndis minnkuðu marktækt - auk þess sem bílslysum ungmenna fækkaði.
Fram kemur að hægt væri að fá fram mjög jákvæðar breytingar með seinkun skóladags um 30-60 mínútur. Í handbókinni - sem gefin var út fyrir rúmum áratug - er lagt til að skoða af alvöru að seinka upphafi skóladags í framhaldsskólum landsins.
Í svari Ingu kemur fram að fjölmargir framhaldsskólar hafi þegar farið þá leið til þess að stuðla að betri heilsu og líðan nemenda. Hún sé hlynnt því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma, og telur það koma vel til greina að hafa það sveigjanlegra hvenær kennsla hefst á morgnana.