Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun sem tekur gildi seint í kvöld, vegna sunnan hvassviðris fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Miðhálendið, Strandir og Norðurland vestra. Hvassir vindstrengir geta verið sérstaklega varasamir ökutækjum sem taka á sig mikinn vind.
Veðurstofan spáir áframhaldandi hlýindum austanlands og lítur jafnvel út fyrir að hitatölur gætu hoggið nærri tæplega aldargömlu hitameti, 30,5 gráðu við Teigarhorn árið 1939.
Theodór Freyr Hervarsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir stöðuna athyglisverða.
„Loftmassi verður mjög hlýr yfir landinu á morgun, sérstaklega í nótt. Í 1.500 metra hæð verður lofthitinn til að mynda 16 gráður í nótt. Og ef þú togar það niður að yfirborði, sem oft gerist í hnúkaþey, og lofthiti hitnar þá um eina gráðu, ætti þetta að ná yfir þrjátíu,“ segir Theodór.
Þrátt fyrir að spáð sé miklum hlýindum telur Theodór það líklegra en ekki að hitamet ársins 1939 haldi á morgun. Hann segir það vera vegna þess að hlýindin eigi sér stað að næturlagi.
„Það sem vinnur gegn því er tími dagsins, hvenær loftmassinn er hlýjastur. Það er í nótt. Loftmassinn er smám saman að kólna á morgun þegar sól rís, þannig að ég hugsa að metið standi þetta af sér. En auðvitað mun þetta met falla fyrr en síðar.“