Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun sem tekur gildi seint í kvöld vegna sunnan hvassviðris fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, miðhálendið, Strandir og Norðurland vestra. Hvassir vindstrengir geta verið sérstaklega varasamir ökutækjum sem taka á sig vind.
Veðurstofan spáir áframhaldandi hlýindum austanlands og jafnvel lítur út fyrir að hitatölur gætu hoggið nærri 87 ára hitameti, 30,5 stigum við Teigarhorn árið 1939.
Theodór Freyr Hervarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir stöðuna athyglisverða.
„Loftmassi verður mjög hlýr yfir landinu á morgun, sérstaklega í nótt. Í 1.500 metra hæð verður lofthitinn til að mynda 16 gráður í nótt. Og ef þú togar það niður að yfirborði, sem oft gerist í hnúkaþey, og lofthiti hitnar þá um eina gráðu, ætti þetta að ná yfir þrjátíu,“ segir Theodór.
Þrátt fyrir að spáð sé miklum hlýindum telur Theodór líklegra en ekki að hitametið frá 1939 haldi á morgun. Það sé vegna þess að hlýindin verða að næturlagi.
„Það sem vinnur gegn því er tími dagsins, hvenær loftmassinn er hlýjastur. Það er í nótt. Loftmassinn kólnar smám saman á morgun þegar sól rís þannig að ég hugsa að metið standi þetta af sér. En auðvitað mun þetta met falla fyrr en síðar.“